"Litla sæta Ísland"
Það sem gerist annars staðar á ekki að geta gerst á Íslandi þvi við erum svo sæt og góð! Heróín er komið til landsins e-ð sem ekki hefur verið á götum á Íslandi áður hóruhús er rekið í Borg óttans mannrán eru framin oftar en áður menn fara með kúbein á djammið og önnur vopn bara til að verja sig 17% barna verða fyrir kynferðislegu ofbeldi og það á Íslandi heimilisofbeldi verður grófara menn eru að setja e-ð ógeð útí drykki hjá stelpum dópið á víst að vera út um allt...já þetta eru staðreyndir um "litla sæta Ísland"-hversu lítið og saklaust er land þar sem maður þorir varla á djammið því maður er hræddur um að e-r ráðist á mann með kúbeini! HALLÓ með kúbeini!! Þetta er e-ð sem ég næ ekki að þurfa að taka með sér hnífa baseball kylfur kúbein og bara af því að þú ætlar að berja mann og annann!!! Ég vanalega set bara sálina á og make-upið og þá er það komið!! Vá hvað maður getur orðið reiður þegar maður setur þetta upp svona og sér þetta á þennan hátt. Og svo dómskerfið...er skrítið að maður treystir ekki dómskerfinu þegar þú færð mun lengri dóm fyrir að stela frá ríkinu en að misnota og skemma lítið barn?? þegar þú getur bara rölt niður og skorið mann á háls og fengið lægri dóm en maður sem svíkur undan skatti þegar peningar eru metnir verðmætari en MANNSLÍF!!!!!!!! Þá hugsar maður sig um tvisvr áður en maður hættir sér út í dómskerfi þar sem maður situr illa barin fyrir framan dómara sem metur líf manns minna virði en helvítis 1000 kall!!! Og svo er verði að reyna að troða því inn í hausinn manni að það sé ekkert verðmætara en mannslíf! Je right! Amma og afi eru geymd á elliheimilum við aðstæður sem eru okkar ríku þjóð til skammar ég meina frekar myndi ég leyfa afa mínum og ömmu búa í herberginu mínu sem er ekki atórt en að hafa þau á Hrafnistu þar sem þaðer ekki einu sinni víst að þau fengju að vera saman svona síðustu árin. Og svo ekki hægt að borga þeim sem vinna við að annast afa og ömmu almennileg laun!!! Og ég meina það er allt brjálað núna eðlilega vegna þess og svo koma þessir "blessuðu" stjórnmálamenn og segja að þeir beri enga ábyrgð!!! Svona er litla sæta Ísland í dag!!!
Þessi færsla er hluti af lokaverkefninu í fjö213!!
ÁMS í ölfushöllinni á lau! Skyldi maður ná se+r +i e-n hestakall??!!!
No comments:
Post a Comment