Tuesday, April 25, 2006

Shitturinn!! Ég er að gera verkefni um menningarfyrirbærið fótbolta í sögu flutningur á fimmtudaginn (afmælisdaginn!)ég er með miklum fótboltaáhugamanni um fótbolta í hóp og við vitum ekki hvað við eigum að gera. Ég ætlaði að taka samskipti kynjanna og fótbolta og e-a fótboltasöngva en bara þetta er ekki að ganga upp!!! Og fótboltaáhugamaðurinn veit ekki hvað hann á að taka!!! Það eru tveir dagar í itta og ég veit ekki hvernig þetta endar!! Pæliði í því að vera í hóp með gæja sem er að æfa með Björgólfi Takefúsa og við erum bæði með ritstíflu dauðans!!! Þetta er ekki sniðugt!!! Var að skila smásögu í ísl skapandi skrif og það er svona ritstíflu e-ð. Þetta er óþolandi!! ARG

Muniði þegar þið áttuð ammæli þegar þið voruð lítil og alltaf þegar þið vöknuðuð á ammælisdaginn þá voru alltaf það fyrsta sem þíð fenguð var pakki. Svo varð maður gelgja og þá hætti maður að fá pakka á morgnan og kannski var þetta algjörlega dagur án ammælisgjafa!! Skrýtið. Mig langar að fá svona nett nostalgíu kast á fimm af því að ég er nú að verða 20 eða að detta á þrítugsaldurinn og fá pakka þegar ég vakna! Sennilega ekki ipod frá pabba það er eignlega alveg bókað!!

Jet black Joe diskurinn er að koma á fös og heitir hann full circle! Það er forglustun núna á hann inn á tónlist,is. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst umm hann enþá. Ég er e-ð mikið að reyna að hugsa um fótbolta seme r eins og ég sagði áðan ekki að ganga upp!!!

Lag dagsins er með Jet black Joe og heitir Full circle!!!!

4 comments:

Ágústa Arna said...

bara að gá hvort þetta virki:)

Anonymous said...

Ég held samt að maður verði aldrei of gamall fyrir pakka... Á næsta afmælinu mínu verð ég officially ekki barn lengur, en samt ætla ég að heimta pakka alltaf...og ef enginn gefur mér pakka, þá gef ég mér bara sjálf pakka..hehe.

Ágústa Arna said...

nei virkar þetta ekki þannig að þú átt ekki að þurfa að eyða peningum í sjálfa þig heldur að láta aðra um að punga út fyrir pakka handa þér??

Anonymous said...

Jú..kannski bara eitthvað þannig. En samt má maður ekki vera svaka eigingjarn að heimta alltaf allt... En nóg um það...TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ Í DAG!!!
Kaupi svo litla súkkulaðibitaköku í mötuneytinu eins og ég lofaði...vona bara að þær séu ekki búnar..hehe