Monday, May 08, 2006

En dagurinn í dag er búin að vera algjör snilld veðurfarslega séð. En aftur á móti er það ekki snilld að vera með það á bakvið eyrun að maður á vera að læra óreglulegar sagnir á þýsku!! 20° hiti og þýskar sagnir fara alls ekki saman!! Hvernig datt skólastjórnendum það að setja þýsku prófið á 11 maí?? Ég meina okei þeir eru kannski ekki svona veðurfræðingar eða e-ð en hey það er bara bannað að hafa þýsku próf eftir 6 maí!!!

Shit hvað ég er komin á þörfina...öhh djammþörfina á ég við! (slæmt ef menn eru að halda e-ð annað!) Þannig að ég býst fastlega við að míns verði bara í ruglinu á Pakkhúsinu (once again) á fös eða lau ekki alveg ákveðið en markmiðið er að reyna að komast inn á suðurland.net. þegar maður er komin þangað þá fyrst er maður celeb!!

Byrja að vinna á fimmtudaginn og ég heimta að allir karlkynsvinnufélagar mínir (fyrir utan pabba og litla bróðir!!) verði berir að ofan!! Pælið í því pabbi er yfirmaður minn!!

Lag dagsins er tvímælalaust paradise by the dashboard light með Pöpunum!!

3 comments:

Anonymous said...

Totally agree sko. Ekkert að fatta þetta, ég sem ætti að vera komin í sumarfrí og byrjuð að vinna, þarf að bíða eftir einu þýskuprófi, á fimmtudag. Þú veist að ég sagði þér að ég ætlaði að læra alveg súper mikið fyrir þetta próf..en er ekki búin að lesa staf í þýskubókinni..jei, ég eitthvað dugleg... Gangi þér vel að læra fyrir prófið..

Anonymous said...

Jamm, og eitt enn, það ætti sko alls ekki að hafa þessi próf öll bara á rigningardögum... og líka próflesturinn Sammála??

Ágústa Arna said...

samála!!!