FYRIRGEFÐU
Hei! Veistu, að þú ert fangi fortíðar
og innikróuð heiftin býr í dökku augunum.
Í stríði er friðurinn svo fjarlægur.
Brenndu ekki brýrnar sem að baki eru.
Í minningunni sárin beru
grassera í hefndarþorstanum.
Já, fyrirgefðu þó að svíði.
Fyrirgefðu af heilum hug,
og lífið andar ef þú brýtur þetta blað.
Já, fyrirgefðu gjörðir gráar.
Fyrirgefðu orðin sár
því hefndin verður varla sætari en það.
Kalt hjarta, já, slepptu af því takinu.
Í birtunni er stóri magnarinn að fylgjast með.
Þeir hverfa, senuþjófar sannleikans.
Því ef við viljum elska, verðum við að læra að fyrirgefa og fórnir færa.
Taktu af skarið, settu fram þitt peð.
Þetta er textinn við nýja lagið hans Gumma Jóns úr sálinni og heitir lagið einfaldlega Fyrirgefðu. Og nú spyr ég er hægt að fyrirgefa allt?? Smá svona pæling.
Horfði á Ungfrú ísland í gær. Ekki beint gaman að horfa á 20 stelpur að keppa í því hver er sætust. En það var eitt sem bjargaði þessu og ég veit að það er alls ekki fallegt að hlægja af óförum annara en ég viðurkenni það alveg að ég sprakk úr hlátri þegar Unnur Birna datt á sviðinu!!!! Æ æ hvað þetta var neyðarlegt!!Pæliði í því ef þetta hefði verið ef hún hefði verið að krína miss world!! Veit ekki hversu happu þessi Julia eigandi keppninar hefði verið þá!! En vonum að þetta gerist ekki egar stelpan krínir nýja miss world.
1 comment:
Hey, strumpur :o)
maður hlær ekki þegar svona gerist, æji hvað ég vorkenndi henni greyinu, ég var lengi að berjast við að gráta ekki.
Skamm, ;o) búin að skamma þig nóg á msn-inu. Flott lagið hans Gumma, algjör snilld og ég segi bara í framhaldi af pælingum okkar áðan að NEI, það er ekki hægt að fyrirgefa allt.
Jæja snúlla, heyrumst fljótt
Knús
Solla
Post a Comment