Tuesday, June 06, 2006

06 06 06 er runninn upp bjartur og fagur (það er ekki e-r haevy sól úti sko!) en í hugum okkar Bubba aðdáenda er mikil sól í hugum okkar. 6 júni er merkisdagur í íslenskri tónlistarsögu vegna þess að þann dag fæddist afkastamesti tónlistarmaður íslandssögunnar sjálfur Bubbi Morthens fyrir akkúrat 50 árum. Og æeg trúi því að 6 júní 2006 (06 06 06) verði merkilegur vegna þess að e-r stærstu tónleikar íslenskar tónlistarsögu verða í kvöld þegar Bubbi heldur upp á 50 ára afmælið-og allt í benni stöð 2!!! Þvílík snilld!! Vá hvað ég hlakka til!! Ég hlakka svo til að ég er að spá í að mætra í vinnuna í míní pilsi á pinna hælum og málup eins og Mikki mús!!! Nei bara smá flipp í gangi!

Listi yfir 10 lög sem eiga sennilega eftir að heyrast í Höllinni í kvöld!:

Afgan
Hirósima
Blindsker
Fjöllin hafa vakað
Mýrdalssandur
Móðir
Kyrlátt kvöld við fjörðinn
Rómeó og Júlía
Leyndarmál frægðarinnar
Grafir og bein

Lag dagsin: afmælissöngurinn konginum til heiðurs og stúlkansem starir á hafið með Bubba sjálfum!

Innilega til hamingju með daginn Bubbi njóttu hans í botn!!

Ohh ég hlakka svo til!!!

No comments: