Saturday, June 03, 2006

Jæja gott fólk it's bloggtime!!

En ég veit ekki hversu mikið ég get bloggað þó svo að það hafi alveg hellingur gerst í mínu lífi og það allt vegna ritstíflu!! Pæliði í því hvað það er ekki cool að vera með ritstíflu en alltí lagi!!

Vinna vinna sópa týna rusl og svo of cource skoða strákana! Hvað annað?? Ef maður notar ekki tækifærið þegar karlmenn á vinnustaðnum er í yfirgnæfandi þá er e-ð stórkostæegt að!! En þetta er mikið til þannig að þeir eru of ungir of gamlir (og ekkert sérlega aðlaðandi!!) eða giftir!! Er ekki hægt að gera æí því að þeir verði bara svona 20-25 á lausu og aðlaðandi?? Og líka barnlausir bara til að hefja sambandið með alveg hreint borð?? Nei bara smá svona pæling. Síðan er e-r svaðaleg grillveisla í e-i timburskemmu í bænum og þá fær að sjá svona megnið af gæjunum sem vinna í BYKO og vonandi verður það ekkert slor!

Það fæddist alveg brilljant hugmynd í vinnunni í gær! Ég er alveg svaðalega skotin í henni. Og hugmyndin er sú að ég fari kannski með Ómari (vinnufélaga!) á þjóðhátíð!!!!!!! How sexý is that!!! Þá yrði farið á sunnudeginu sem mér eldri og reyndari menn í þjóðhátíðarfræðunum segja sé lang skemmtilegasti dagurinn!! Og ef það gerist að ég færi á þjóðhátíð þá rætist minn æðsti draumur síðan ég var 10 ára!! Þæliði í því þegar ég var 10 ára þá var minn æðsti draumur að fara á þjóðhátíð!! Og sá draumur hefur verið sá stærsti alveg síðan þá! Tek það fram að ég var ekki eðlilegur krakki!!!!

Bubbu live á stöð 2 06 06 06!! Das Kapital EGÓ Utangarðsmenn GCD MX21 5000 manns í höllinni geðveikt stemning!! Ég hefði heldur viljað vera á staðnum því a' stemningin verður geðveik!!

Lag dagsins: Grafir og bein með Bubba!!

2 comments:

Anonymous said...

Hæ hæ. Jamm, það verður gaman að horfa á tónleikana með Bubba í sjónvarpinu.(Samt þarf ég að vakna 5.45 morguninn eftir til að fara að vinna. Viltu kannski skipta um vinnu?? Þú mætir 7 og ég kl. eitt..)
Myndi samt ekki vilja fá svona marga í afmælið mitt...hehe. Jamm, hey, talandi um afmæli. Þá skaltu taka frá laugardaginn 24. júní. (verð að vísu búin að vera 18 í 5 daga, en vildi bara ekki hafa veisluna á mánudegi..hehe. Er sko búin að skipuleggja hana næstum alveg. Algjört möst að mæta í bleiku!! (En ekki hvað?!?!)
Bæjó.

Ágústa Arna said...

viltu ekki hafa 5000 mannsa í afmælisveislunni þinni og þú ert bara að taka þín eigin lög??! Mér finnst tilhugsunin ein alveg geðveik!!! Enda Bubba fan:) En jú ég mun mæta í partýið í svona búning eins og John Travolta var í í saturday night fever!! Halló hann var í bleikum buxum