Heeeyy!! Ég er ekki sátt akkúrat núna!! Fór eftir skóla að taka bensín á ESSO og skutlaði Ágústu Sverris í vinnuna (Nóatún). Eins og þið vitið er langt frá ESSO út í Nóatún kannski svona mínóta eða e-ð. Okei. Um leið og Ágústa fer út úr bílnum þá heyri ég auglýsingu sem er á þá leið að íslenska þjóðin hafi stutt vel við bakið á Magna og því ætlaði Olís að veita Magna afslátt heilar 13 krónur á milli 15 og19!! Af hverju sagði mér engin frá þessu??! Hvers vegna er ég alltaf svona seinheppin??! Þið þarna auglýsingafók sem eru ekki að vinna vinnuna ykkar þið fáið ekki knús!! Eða kannski...er þetta ekki bara mér að kenna?? Átti ég ekki bara að vera að hlusta á útvarpið. En hvað um það.
Hvort fagna karlmenn eða konur (strákar og stelpur) því meira að það séu komin mánaðamót?? Ég held að vér konur fögnum því meira. Af hverju?? Jú FÖT!!!! Já sumar konur )þar á meðal ég)ganga hreinlega fyrir því að fá FÖT og það að það sæeu komin mánaðamót þýðir hreinlega FÖT og það mikið af þeim! Jebb vér konur erum frekar skrýtnar. En þér karlmennn eruð yndislegir!! Án ykkar væri heimurinn ekkert skemmtilegur. Alla vega fyrir okkur sem erum ekki fyrir konur!!
1 comment:
Já...manstu hvað ég sagði rétt áður en þú fórst út á ESSO...? Ég sagði að það væri miklu ódýrara hinum megin við ánna...ekki það að grasið sé eitthvað grænna hinum megin...hef bara ekki kannað það.. :Þ En þú varst nottla á síðustu dropunum..
Sko, ég var alveg geggt ánægð þegar ég fékk útborgað síðast.. en í rauninni af ástæðulausu, vegna þess að ég ætla að reyna að eyða ekki neinni einustu krónu í föt þennan mánuðinn..sem verður súper-erfitt.. Ég og Kristrún erum nottla að fara til Danmerkur í október, og ætlum að reyna að versla og versla, og skoða og taka myndir...allt á mettíma..semsagt tæpum 3 dögum..hehe.
Samt á ég líka eftir að kaupa mér bíl, skó og alles sko.. Hef ekki fundið rétta bílinn.. Hann þarf sko að vera BLEIKUR!! hehe
Post a Comment