Saturday, August 26, 2006

Jahúúúúú!! Það er komin vírusvörn í tölvuna og ég segi það að það var svo sannarlega komin tími til!

Er fólk ekki ready í Búbbana?? Ég er alveg að fíla Búbbana að ég get varla beðið eftir því að sjá þá í kvöld. Á ekki annars að varðveita krakkann í sjálfum sér??

Litli bróðir tók upp á því á fimmtudaginn að þrífa elsku sæta yarisinn minn (sem ekki var vanþörf á hóst!) og allt í lagi með það en síðan förum við í skólann og ég tek ekki eftir neinu. Ég kem heim í gat um hálf 10 í gærmorgunn og þá segir gamli maðurinn (pabbi) að mikið sé nú bíllinn minn hreinn ég: hreinn?? gamli maðurinn: já Brynjar þreif hann í gærkvöldi ég: er það?? Pabbi: já farðu út og skoðaðu bra bílinn. Og ég með það sma út og þá já og þá fyrst tók ég eftir því að elsku litli yarisinn hafði verið þrifinn!! Og það var búið að benda mér á það!! Og ég er búin að skammast mín alveg þvílíkt. Sem er ekki skrýtið þ´vi maður á að taka eftir því þegar það er búið ða gera e-ð fallegt fyrir mann!! Hvað næst??Mun ég ekki taka eftir því þegar maðurinn minn biður mín?? Vá þvílík eiginkona (tilvonandi)!!

Lagið Hate me með Blue October er gjörsamlega geðveikt bara til að láta ykkur vita afþví. Annars er flottara að segja by Blue October heldur en með Blue October

Lag dagsins er: Allt fyrir þig by Baggalútur og Björgvin Halldórsson

3 comments:

Anonymous said...

hæ, hef ekki getað kommentað í soldinn tíma, þannig að ég ætla að gera það bara núna - betra seint en aldrei..
Það er geðveikt óþægilegt að hafa ekki tölvuna sína núna, sérstaklega ekki í skólanum. Það er svo margt inná henni sem ég get ekki verið án, þ.á.m. tónlistin... Þannig að ég hangi bara inná bókasafni í gatinu og er að "læra".
Ég gæti ekki verið meira sammála þér með Blue October. Hate Me er brjálað lag, og ég verð aldrei leið á því. Justin, söngvarinn, hann er bara með svo geðveika rödd, að það er bara ekki hægt að fá nóg af þessu. Mæli líka með lagi með þeim sem heitir "Calling You". Síðan þeirra er blueoctoberfan.com
Hey, þegar ég fæ mér bíl (og bílpróf kannski líka, heh, þá ætla ég sko að láta litla bróður minn þrífa minn bíl á hverjum laugardegi. Hehe.

Ágústa Arna said...

hæ elskan

Efast um að litli bóðir fari e-ðað þrífa bílinn minn í bráð!!

Kem með tölvuna mína á mánudaginn er með 160 lög inn á tölvunni! Vá hvað ég hlakka til!:)

Anonymous said...

jamm..ég er "bara" með rúmlega 8 gígabæt af tónlist í minni..hmmm, hmmm, en ég er algjörlega komin með nett fráhvarfseinkenni, vegna þess að ég hef ekki hitt tölvuna mína frá því í byrjun ágúst...en fæ hana sko í dag (5.sept..)!!.