Sunday, September 17, 2006



Hann Magni okkar er kominn heim!! Og eðlilega þá er þjóðarstoltið alveg á fullu þessa stundina enda ekki skrýtið við það hann var að standa sig alveg svaðalega. Mín persónuleg skoðun er sú að þó að Unnur Birna hafi náð í öllu þessu miss world dæmi þá hafi Magni samt náð að gera mun stórkostlegri hluti en hún Unnur Birna okkar því að það er ekkert smá mál að vera að syngja fyrir menn eins og Tommy Lee og Jason Newsted. Það er einhvern vegin bara meirra afrek það sem Magni gerði. Og ég tek þetta bara sem dæmi af því að bæði hafa þau fengið konunglegar móttökur í Smára(lima)lindinni. Og ekki misskilja mig Unnur Birna stóð sig alveg eins og hetja í Miss World og var okkar ágæta landi til mikils sóma. Þannig að nú er Magni orðinn konungur Íslands og Unnru Birna drottning Íslands. Cooool stofnum konungsdæmi!!


Þessi færsla hefur einkennst af smá svona þjóðarrembingi. En athugið bara smá.

Lag dagsins: Fram á nótt by Á móti sól. (Þeir coveruðu það. En það er annars með bandinu Nýdönsk)

No comments: