Saturday, October 28, 2006

Búin að vera í vörutalningu í allann dag og það kæmi mér alveg skemmtilega á óvart ef mig myndi ekki dreyma tölur gula og gula miða í nótt. Flúgandi tölustafir. Flúgandi gulir miðar. Okei einhver bara einhver efist um geðheilsu mína! Fljót! Núna! Strax!!

Fóstbræður. Þvílík snilld!! Spaugstofan er akkúrat ekkert fyndin í samanburði við Fóstbræður. Eins og ég segi þvílík snilld!!

Nenni ekki að blogga. Svoldið eftir mig. En ef þið eruð nýbyrjuð á vinnustað og ykkur langar til að kynnast vinnufélögum ykkar þá er vörutalning ekki málið. það er engin leið að tala saman á meðan verið er að telja. Allir eru bara 1...2...3...4....5...! Mætið bara og gerið ykkur að fífli í næsta staffa partýi drekkið ykkur blind full og skítið á ykkur. Þá muna allir definatly eftir ykkur!! Þetta var reyndar orðið svo slæmt í dag að hausinn á mér fór algjörlega í fokk og ég gat ekki talið. Sem það var ég búin að vera að telja stanslaust (nánast!) í 8 tíma! Það er kannski e-ð skrýtiðað e-ð gefi sig í hausnum á manni!!!

Og ég hef komist að því mér til mikillar skelfingar að hávaxið fólk stjórnar heiminum og ég er ekki að grínast!! Það miðast allt við þeirra þarfir og þá meina ég allt!! Hvað erum við konur á kvarta??!

laufey elsku krúttið mitt til hamingju með árin 20 og einmitt núna ertu örugglega að njóta allra guðaveigana sem þú keyptir er þú fórst í fyrsta sinn í ÁTVR á snekkjunni þinni sem er akkúrat núna einhvers staðar í Karíbahafinu. Ég er samt enþá að bíða eftir boðskortinu mínu!! P.S: ég er búin að vera 20 síðan í apríl og hef aldrei farið í ríkið!!

lag dagsins: Roxanne By Delana (by the way þetta er gjörsamlega geðveikt!!!)

Bíddu átti þetta ekki að vera stutt??!

No comments: