Wednesday, October 18, 2006

Góðan dag! Ég var alveg ógeðslega dugleg í gær. Reif allt drasl og dót sem var í öllum mögulegum og ómögulegum skápum og skúffum sem eru í mínu litla sæta herbergi og þvílíkt drasl!! Díses Kræst. Jæja en ég auglýsi eftir náttúruverndarsinnum sem hugsanlega eru á móti því að fataskápurinn í herberginu mínu verður rifinn því hann er orðinn gamall og sumir myndu segja að hann væri antík en hann er fyrir löngu orðinn gagnslaus! Og hann verður rifinn (vonandi í dag!) og honum verður hent!! Óg ykkur að segja þá get ég ekki beðið!! En hvar í ósköpunum hef ég fengið allar þær bækur sem eru inni í herberginu mínu?? Mikið af þessu eru barnabækur eins og Ari lærir að synda sem var notuð til að kenna manni að lesa hér áður fyrr í old days. Síðan uppáhalds bókin mín þegar ég var 8 ára sem var Lion King!! O mæ god hvað ég elskaði hana!! Henti líka alveg helling af skólabókum sem er ekki hægt að selja. Hvað er það?? Maður fer með helling af bókum sem maður hefur engin not fyrir og ætlar að selja þær en nei í staðinn situr maur uppi með fullann skáp af bókum sem eru orðnar gamlar úreltar sem hætt er að nota og gera ekkert annað en að teppa skápapláss! Henti meira að segja einhverri bók sem ég var með í sál 103 (það eru 3 ár síðan!) sem var meira svona handrit af bók sem síðan kom. Var maður að vonast til að einn góðann dag myndi maður nota þetta handrit??! Díses kræst!!

Prison break byrjaði í gær! Og spennustigið var ekki minnkað á milli þáttaraða!! Sem voru pínu vonbrigði því ég héllt að það yrði aðeins minnkað svo maður myndi ekki missa það alveg eins og in last episode. En pælið í því ef það hefði ekki komið önnur sería og þetta hafi bara endað eins og síðasta sería!! Þeir hlupu bara út í myrkrið og maður hefði ekki fengið að vita hvað varð um þá! Þá hefði ég farið í mál!

Airwaves er að byrja í dag og svona eins og alltaf er ég ekki að fara á airwaves!

06 06 06 eru komnir út á cd og dvd og bara sem Bubba fan þá er það bara must að eignast þetta!

No comments: