Wednesday, November 29, 2006

25 dagar til jóla og ég er að spá í að stofna samtök fólks sem á eftir að kaupa allar jólagjafirnar í þeim tilgangi einum að fá góðar hugmyndir!! Veit ekkert hvað ég á að gefa öllu gfólkiu sem mér finnst vænt um!

Monday, November 27, 2006

Mannréttindabrot: Að láta mann finn forseta Bandaríkjanna sem voru 8 ár í embætti!! Mæli ekki með því *æl*

Svaf í herberginu mínu í nótt sem var bara næs! nennti ekki fram úr !!

Mánudagur.

Jólin já blessuð jólin eru eftir 27 daga
Jólalag dagsins: mánudagr með mér!!!!

Saturday, November 25, 2006

1. Miðnafnið mitt(easy on):
2. Aldur minn:
3. Er ég Single or Taken:
4. Uppáhalds iðja:
5. Uppáhalds lagið mitt:
6. Hörð eða mjúk:
7. Dirty eða Clean:
8. Er ég með Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu mínu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli*engin pressa*?13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig*auðvitað*?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sef ég?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

En eitt svona hversu vel þekkiru mig en alltaf jafn gaman af því! Síðan þið sem eigið kærasta/kærastu getið prófað að leggja þetta fyrir þau undir yfirskriftinni: hversu vel þekkiru maka þinn??! Sem getur gefið góðar vísbendingar um sambandið. Nú ef hann veit ekki í hverju þú sefur þá er sambandið á rangri leið!
Góða kvöldið! Eða það er alveg að koma kvöld!!

Jæja þá er verið að setja saman fataskápinn minn sem by the way ég keypti mér í maí!! Þetta er orðið frekar langþráð! Og það er hann elsku stóri bróðir sem er að setja skápinn saman reyndar gegn því að hann fái frekar gott að borða!

Benedikt van Hoff þjóðverjinn sem meikaði það í i dolinu í fyrra mætti í x-factor meikaði það komst ekki áfram og missti það. Vægt til orða tekið! Brjálaður út af því að Páll Óskar hleypti honum ekki áfram. Átti palli kannski að hleypa honum áfram vegna þess að hann er hommi (eins og Palli)?? Meina maðurinn er ekki góður singer og hefur ekki að mínu mati þennan x-factor sem þessi þáttur gengur einmitt út á. hmm! Og þessir í sloppunum af hverju í andsk. komust gæjarnir í hvítu sloppunum áfram??

29 til jóla
Jólalag dagsisns: Kósýheit par exelanse by Baggalútur

Friday, November 24, 2006

Þetta er gæinn (hérna við hliðina á) sem var herra Ísland í gær. Og hann er ljóshærðu og tanaður og bara sætur strákur af Akranesi. Þannig að það er kominn annar frægur maður af skaganum en Óli Palli. En svona by the way þá labbaði Óli palli á mig á söngkeppni nfsu um daginn. Og ég er ekki búin að fara í bað núna í 2 vikur. Djók!

Árni Johnsen mætti ekki til að taka við heiðusrverðlaunum ársins á gullkindinni í gær: Hvað er það?? Af hverju er fólk að taka sig svo hátíðlega að það mætir ekki á gullkindina?? Er e-ð merkilegra að fá edduna heldur en gullkindina?? Er það út af því að gullkindin er að verðlauna það versta á árinu en ekki það besta eins og eddan??
meina sjónvarpskona Íslands Sýrri (ég þoli hana ekki!) varð alveg kreisí vegna þess a hún fékk 3 tilnefningar til gullkindarinnar og að sjálfsögðu mætti ekki. hvað er málið??

jóladagatal djammstrumpsins er komið af stað enda ekki seinna vænna því aðeins er mánuður til jóla og ég á eftir að kaupa allar jólagjafirnar!! Og ég hef ekki guðmund um hvað ég á að gefa til dæmis bræðrum mínum eða móður minni. Ekki hjálpaði gjafahandbók Hagkaups mikið!! og af hverju kemur ekki Harry Potter út árlega svona til að redda jólagjöf handa litla bróður??!! Svoldið fyrirsjánlegt en samt...!

30 dagar til jóla
Last Christmass by Wham

Thursday, November 23, 2006

Mikið lítur þú vel út beibí frábært hár!! Það er komið nýtt look (útlit) á líðuna og það var snillingurinn miss (ungfrú) sverrisdóttir sem á allan heiðurinn að því! Og það eru finally (loksins) komnir linkar (tenglar) inn á síðuna. Og elsku litli djammstrumpurinn er orðinn meira en 2 ára! Eigum við að klappa fyrir miss Sverrisóttur?? Klapp Klapp Klapp

Ef þð ætlð að kjósa í herra ísland þá þurfið þið að fara inn á ungfrú Ísland síðuna til að kjósa! Spes. Virkilega spes!!!

Herbergið mitt er orðið gult og það verður hopefully (vonandi) byrjað að parketleggja í kvöld og maybe (kannski) flyt ég inn í það um helgina! geðveikt
31 dagar til jóla eða dagur eða whatever! Það verður kveilt á jólaljósunum hér á self í kvöld! Og allt opið og svona!!

Er í íslensku. og þvílíkar umræður. Það er búið að tala um stúdentspróf og dómskerfið og fangelsi og svona mjög svo heitar umræður!!

Lag dagsins: Nobody knows by Pink

Á morgunn ætla ég að byrja með svona jólaadagatal þar sem ég mæli með hinum ýmsu jólalögum . Og við ykkur sem segið að þetta sé nú heldur snemmt þá segi ég hey það er mánuður til jóla á morgunn!!

Wednesday, November 22, 2006

Ég er að spá í að taka þátt í jólalagakeppni rásar 2 og það bara út af vinningunum!! Kann ekkert á hljóðfæri en mér er alveg sama vegna þess að mig langar í vinningana!!

Vinningar fyrir Jólalag Rásar 2 árið 2006:
Play Station 2 tölva
Út að borða f. 2 á Nings
Flugfar f. 2 innanlands með Flugfélagi Íslands
Bílaleigubíll frá Hertz eina helgiJólaskraut frá Blómavali
Geisladiskar í verðlaun:

Frost:

Margrét Eir - MEir, Andartak & Í djúpum dal (safnbox)
Hera Björk - Hera Björk
Margrét Eir, Eiríkur Hauksson & Páll Óskar - Horfðu til himins
Guðrún Árný - Eilíft augnablik
Helgi Rafn - Personal Belongings
Jóhann Friðgeir - Jóhann Friðgeir og vinir
Frostrósir - Vinsælustu lögin
Brooklyn Fæv - Góð jól

12 tónar:

Ragnheiður Gröndal - Þjóðlög
Pétur Ben - Wine for my Weakness
Elísabet Eyþórsdóttir - Þriðja leiðin
Það vantar spýtur... safn bestu barnalaga Ólafs Hauks Símonarsonar (söngvarar Sigrún Hjálmtýsdóttir, Páll Óskar Hjálmtýsson og Örn Árnason)
Biggi - id
KK - Blús

Smekkleysa:

Björk Surrounded; Dual box 7 cd´s & DVD´s
Bogomil Font & Flís-Bananaveldið
Bogomil Font og Stórsveit Reykjavíkur-Majonesjól
Helmus & Dalli-Drunk Is Faster
Skakkamanage-Lab Of Love
Kalli-While The City Sleeps
Tómas R. Einarsson-Romm Tomm Tomm

SENA:

Toggi - Puppy.
Friðrik Karlsson og Þórunn Lár - Álfar og Fjöll.
Regína Ósk - Í djúpum dal.
Bubbi Morthens - 060606 CDBubbi Morthens - 060606 DVD
Bríet Sunna - Bara ef þú kemur með.
Óskar Pétursson - Ástarsól (lög Gunnars Þórðarssonar)
Hildur Vala - Lalala
Friðrik Ómar - Annan dag.
Óskalögin 10
Í svörtum fötum - Orð.
Megas - Pældu í því sem pælandi er í.
Fabúla - Dusk.
Ýmsir - 100 íslensk jólalög 5 cd´s
Brain Police - Beyond the Wasteland
Lay Low - Please Don't Hate Me
Guðrún og Friðrik - Góða skemmtun
Megas - endurútgáfurDrög að upprisu - Upphaflega platan + aukaplata.Þrír blóðdropar - Upphaflega platan + aukaefni.Hættuleg hljómsveit & glæpakvendið Stella - Upphaflega platan + aukaplata.Greinilegur púls - frábærir tónleikar frá Púlsinum 1991, áður óútgefnir. Tvöföld plata.
Selma og Hansa - Sögur af konum
Stóra stundin ykkar CD+DVD
Sálin & Gospel - Lifandi í Laugardalshöll CD+DVD
Ampop - Sail To The Moon
Baggalútur - Jól & blíða
Sinfóníuhljómsveit Íslands og Elín Ósk Óskarsdóttir
Friðrik Karlsson - Móðir og barn
Björg - Himnarnir opnast : Jólaperlur
Todmobile - Ópus :: 6
Björgvin ásamt Sinfóníuhljómsveit Íslands CD+DVD
Pottþétt 42
Laddi - Hver er sinnar kæfu smiður

Geimsteinn:

Rúnar Júlíusson - Með stuð í hjarta
Rokk og rólegheit
Dulbúin gæfa- í tugatali
Farandskugginn
Blæbrigði lífsins
Það þarf fólk eins og þig
Rúnar og Otis
Á ýmsum aldri
Nostalgia
Trúbrotin 13
Leið yfirReykjanesbrautin
Hjálmar - Hjálmar
Hljóðlega af stað
Alexandra - Soprano
Gammar - Af Niðafjöllum
Koja - Koja
Breiðbandið - Léttir á sér
Ýmsir - Ljósalagið 2006
Æla - Sýnið tillitsemi, ég er frávik
Baggalútur - Aparnir í Eden

RUV:

Útvarpsperlur - Sigurveig Hjaltested 1
Svavar Gests 1
Svavar Gests 2
Jón Sigurbjörnsson
Sigurður Ólafsson
Hljómsveit Bjarna Böðvarssonar
SöngkvartettarHaukur Morthens og hljómsveit hans
Guðmundur Guðjónsson
Ingibjörg Þorbergs
Tryggvi Tryggvason og félagar 1
Tryggvi Tryggvason og félagar 2
Morgunleikfimi þegar þér hentar.

Gamla fólkið kom heim í gær. En það sem kom mér mest á óvart er að yarisinn fékk að vera inni í bílskúr í nótt. Og ég sem var ready með vatnsblöðrurnar sem ég var tikbæuin til að láta rigna yfir foreldra mína. En mæer til mikillar furðu þá mintus þau ekki einu orði á að setja bílinn inn í bílskúr þannig enn einn morgunninn þá fór ég inn í heitann yarisinn!!

Hefði ekki verið skynsamlegra af Eggerti Magnússyni að kaupa Liverpool?? Mér finnst það!!

Monday, November 20, 2006

34 dagar til jóla

Mánudagur. Þurfti að keyra litla bróður á æfingu fyrir klukkan 7 í morgunn. Veeeeiiiiiiii ! Ég er ekki týpan sem fer á fætur klukkann hálf 5 á morgnana! Ohh! Og svo koma mamma og pabbi heim á morgunn! Og ég er farin að hallast að því að þetta dæmi með að breyta herberginu mínu hafi verið alvarleg mistök og jafnvel tæknileg líka!!(ofnotaður brandanri ég veit það!) en alla vega þá er mín heitelskaða hillusamstæða búin að vera á hanginum heima í nokkrar vikur það er ekkert hægt að taka til svona almennilega og ég er að verða craaaazy á ástandinu. hvar ræður maður svona manneskju til að taka til fyrir sig á meðan maður er bara að læra eða e-ð?? Bíður sig einhver fram?? Magnús Kannski??

Af hverju var Skuggabörn valin besta heimildamyndin en ekki myndin um Jón Pál?? Skuggabörn flokkast ekki undir góðar myndir að mínu mati. En Pétur Jóhann var laaaand bestur

Á föstugadinn verður akkúrat mánuður til jóla og fer djammstrumpurinn því að komast í jólaskapið!! Fyldist með á föstudaginn!!

Atugið þetta blogg lesist með þeim fyrirvara að það er mánudagur!

Sunday, November 19, 2006



Þessi plata með Sálinni og gospel er laaang efst á jólagjafaóskalistanum mínu fyrir þessi jólin sem eru eftir svona 35 daga! Ég er að segja ykkur það að þegar ég heyrði Ekkert sem bretir því í flutningi Sálarinnar og Gospel þá fékk ég svona risastóran kökk á hálsin. Ég veit ekki hvernig á að lýsa þessu þetta er svona konunglegt tignalegt stórfenglegt og já...himnenskt!! Ég segi það bara að gospelkórinn er best geymda leyndarmál í íslenskum tónlistarheimi!! Mæli með þessu og ég mæli líka með öðrum tónæeikum með einmitt Sálinni og gospelkórnum 30. des. Stelpur eruði ekki game í það??

2 dagar í það að mamma og pabbi koma heim og já það hefst stríð. Stríðið um bílskúrinn!! það er að segja hver fær að hafa bílinn inni í bílskúr og einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að það verður ekki ég!!

Tuesday, November 14, 2006

Setti henn móður minni eina mikilvæga reglu áður en hún fór út (ásamt föður mínum) að það væri bannað að hringja heim og tilkynna hitastigið!! En það er e-ð sem segir mér að sú regla verður brotin og það fljótlega

virkilega slæmur mánudagur í gær. eiginlega það slæmur að vinir manns voru farnir að hafa áhyggjur af manni.ekki allir át frekar slæma manudaga. Og hefur maður engan rétt til að kvarta lengur??

Schnilld. Ég er að fara að keyra yarisinn inn í heitann bílskúrinn!!

40 dagar til jóla

Monday, November 13, 2006

Kannski komi tími á smá svona blog?? Æ-i ég veit það ekki. Nenni því ekki. Gamla settið er að fara stinga af til fokking kanarí það er spáð fokking 10 stiga frosti á fim sem er bara algjör viðbjóður og já mér er illt í hálsinum mig langar heim að sofa herbergið mitt er enþá í fokki verður hopefully málað um næstu helgi fór að sofa klukkan hálf 2 eða e-ð í nótt. OHHH mig langar bara til að kvarta!

Ljósi punkturinn er 100 íslensk jólalög sem er komin út núna með helling af flottum 80's jólalögum eins og Þú og ég (jólagjöfin mín í ár ekki metin er til fjár...9 og so videre. Inn galli samt. Þegar jólin koma með á móti sól er ekki á disknum sem mér fnnst bara skandall. Og það er ekki út af því að Magni er svo og svo vinsæll eða e-ð heldur er þetta eitt af mínum uppáhaldsjólalögum!!

Ég get sett elsku litla yarisinn minn inn í bílskúr á meðan mamma og pabbi eru úti. Sem er mjög gott þegar er spáð svona viðbjóð (-10 gráður) Sofandi námsstúlka fraus við það að skafa af bílnum sínum. Af hverju?? Hún sofnaði!!

Var að sjá drög að próftöflu í morgunn og samkvæmt henni er stæ prófið 2 des og svo þýs prófið 12 des. HALLÓ ER E-R HEIMA?? Á ég ekki að komast í jólafrí fyrr en 12 des?? Það er ekkert ömulegra en að bíða i heila viku eftir því að komast í síðasta prófið. Maður hættir að nenna að læra maður er alltaf að fara yfir það sama núliðin tíð í þýskuallan daginn í heila viku?? Ó mæ god!! veit ekki hvort ég meiki það. En athugið þetta voru bara drög að próftöfluþannig að þetta getur breyst!!

Lífið væri mun auðveldara ef maður gæti verið með vettlingana á höndunum alltaf!!

41 dagur til jóla

Friday, November 10, 2006

Skóladansleik FS aflýst á Selfossi

Forrráðamenn Fjölbrauta Suðurlands ásamt stjórn nemendaráðs, hafa ákveðið að fella niður skóladansleik, sem fram átti að fara í klukkan 22 í kvöld í Ölfushöllinni, vegna veðurs og óhagstæðrar veðurspár. Að sögn skólayfirvalda gengur á með dimmum éljum og þótti ekki treystandi að halda ballið þess vegna. Nánari upplýsingar fást hjá skólayfirvöldum FS og stjórn nemendaráðs.

Okei. En það sem sá sem skrifar þessa frétt er að átta sig á að FS er fjölbrautaskóli Suðurnesja en ekki Fjölbrautaskóli Suðurland. Enda væri mun styttra fyrir FS-inga að skella sér bara á yellow eða e-ð!!

Wednesday, November 08, 2006

Mig langar til að vitna aðeins í Sigga Storm: "Hér á Ísafirði verða svo hvít snjókorn"! Okei en af hverju var snjórinn á bílnum mínum þá bleikur í morgunn!! Er komin einhver veðurfræðilegur bleikur matarlitur?? E-ð sem gleymdist að kenna manni í náttúrugræði hérns í gamla daga?? Það er svo augljóst að snjórinn sé hvítur! döhh!

Á morgunn fer fram hin árlega söngkeppni nfsu og ég verð útkastari aka í gæslu. Er hlutverk mitt sem dyravörður í Hey þú hérna forðum daga að skila mér þessu hlutverki. Ég er komin í sömu stöðu og hann Már vinur minn. Og ég sem lít ekki út eins og dyravörður!! Eru það fordómar að líta á dyraverði sem frambærilega keppendur í worlds strongest men?? Ef svo er þá er ég ekki að fara í þá ágætu keppni

Það snjóar! Og inní mér er lítið jólabarn sem er staðsett rétt undir rifbeinunum sem gleðst mjög mikið enda ekki nema 46 dagar til jóla!

Lag dagsins: Þú trúir því by Sálin og gospelkór reykjavíkur (Bara flott það er e-ð svo tignalegt við þennan kór og svo blandast þetta tónlist sálarinnar og útkoman verður tær snilld!!)

Tuesday, November 07, 2006

Hér er ein hugmynd af því sem hægt er að gefa mér í jólagjöf!!

Saturday, November 04, 2006

Jæja...! Húsið opnar eftir svona korter en þetta verða ekki svona vonbrigði eins og annar í jólum hérna forðum daga! Ég er mjög svo save inn! En annars búin að fara í sturtu komin í sokkabuxurnar og þær eru heilar. Sem er nýtt. Á það til að rífa sokkabuxur á svona 01 og það fer gífurlega mikill peningur í sokkabuxna kaup á ári. En ég er bara að fara að skella á mig make uði og svo ætlar gamli kallinn að skutla mér en nei ég er ekki að far að taka jómfrúar fyllirýið mitt. Það verður bara að bíða betri tíma!

Upp á palli, inn í tjaldi, út í fljóti,
vonandi skemtið' ykkur
illa drukkin, inn í skógi, hvar er tjaldið?
Vonandi skemtið' ykkur vel!

Leyfi bara greifunum að enda þetta. E#ða okei Duran Duran Íslands! Var bara að leggja saman 2 og 2 um daginn og fékk þetta út!!

DJAAAAAAAAAAAAAAAAMMMMMMMMMM!!:)
Hey þessi er komin í gang aftur!!
Góðan dag!! Það hefur ekki verið svona gott veður síðan æeg bara veit ekki hvenær!! Alveg yndislegt veður! Sólin skín í heiði og fuglarnir syngja Bítlalög. All you need is love! Eða ekki. Veðrið úti er vægast sagt ömulegt. Vægast sagt. Á ég að segja bara viðbjóðslegt?? Það er ekki hægt að skýra þetta með einhveju öðru en að segja bara að veðrið úti er viðbjóður! Und míns er að fara að skemmta sér í kvöld og það er spáð alveg crazzzy roki! 20 metra á sek eða e-ð. Ég er að spá í að biðja gamla manninn á heimilinu að skutla mér á ballið. Því ekki tek ég taxa. Það er svo dýrt! Heldur labba ég og fýk bara til Grindavíkur eða e-ð en að taka leigubíl!! En samt einn ljós punktur. Það er ekki snjór og það er ekki hríð. Ef svo væri þá þyrfti maður kannski að dusta snjóinn undan pilsinu áður en maður gæti farið að höstla! Búin að vaða snjó upp í nára og það væri kaaaalt! Síðan var e-ð bull í fréttablaðinu í morgunn um að það yrðu rauð jól í ár. Common það er bara 4. nóv og þessir vitleysingar eru strax farnir að hóta rauðum jólum. Hvað á það að þýða?? Segi bara eins og Bogómíl Font veðurfræðingar ljúga!!

Hversu óhepin er hægt að vera??! Ókei smá forsaga. Fór með stelpunum í bíó á Mýrina (Vægt til orða tekið frábær mynd!) og ætluðum í 8 bíó en það var uppselt þannig það var ákveðið að fara í bíó kl 10. Og allt í goðu með það. Fórum heim til Sunnu og fórum í matador. Okei núna fara hörmungarnar að byrja! Það er þannig í matador að þú verður að fara yfir byrjunareitinn til að geta fengið 2000 kall og það má ekki lenda á honum því þá færðu engan 2000 kall! Einfalt. En í stuttu máli sagt þá spiluðum við 2 hringi og ég lenti tvisvar á byrjunarreitnum!!! Og í annað skiptið þarfti ég að borga 2000 kall í e-n helvítis skatt!! Óheppinn?? Þetta er ekki hægt!!

Á móti sól í ölfushöllinni í kvöld eftir svona nokkra tíma eða bara um miðnættið. Og ég á von á alveg geðveiku stuði í kvöld. Og bara skilja baseball kylfurnar eftir heima og alla hnífa og öll leiðindi mæta bara með góða skapið. Menn fara ekki með baseball kylfur á djammið. Ég skil ekki svoleiðis fólk. En ætti ég að biðja hann elsku Þóri minn um að spila afmælissönginn fyrir Binnu?? Jebb hún á afmæli á morgunn konan. Verður 20! Sko búin að ná mér. haha. Vonandi að hún lesi ekki bloggið mitt fyrir ball. Ég veit ekki hvað hún mundi gera við mig ef ég myndi láta verða af þessu. Hún yrði ekki sátt!!

Jólalagasamkeppni rásar 2 að fara í gang. Ætti maður að búa til lag??

Lag dagsins: Hver einasti dagur by Á móti sól (Þetta lag er geðveikt. Það er akkúrat ekkert íslenskt við þetta!!)

Wednesday, November 01, 2006

Hey þetta er 300. færslan!! Pælið í því! Og nú er komin nóvember sem þýðir að nú er hægt að fara að segja að jólin séu í næsta mánuði!! gleði gleði