Friday, November 24, 2006

Þetta er gæinn (hérna við hliðina á) sem var herra Ísland í gær. Og hann er ljóshærðu og tanaður og bara sætur strákur af Akranesi. Þannig að það er kominn annar frægur maður af skaganum en Óli Palli. En svona by the way þá labbaði Óli palli á mig á söngkeppni nfsu um daginn. Og ég er ekki búin að fara í bað núna í 2 vikur. Djók!

Árni Johnsen mætti ekki til að taka við heiðusrverðlaunum ársins á gullkindinni í gær: Hvað er það?? Af hverju er fólk að taka sig svo hátíðlega að það mætir ekki á gullkindina?? Er e-ð merkilegra að fá edduna heldur en gullkindina?? Er það út af því að gullkindin er að verðlauna það versta á árinu en ekki það besta eins og eddan??
meina sjónvarpskona Íslands Sýrri (ég þoli hana ekki!) varð alveg kreisí vegna þess a hún fékk 3 tilnefningar til gullkindarinnar og að sjálfsögðu mætti ekki. hvað er málið??

jóladagatal djammstrumpsins er komið af stað enda ekki seinna vænna því aðeins er mánuður til jóla og ég á eftir að kaupa allar jólagjafirnar!! Og ég hef ekki guðmund um hvað ég á að gefa til dæmis bræðrum mínum eða móður minni. Ekki hjálpaði gjafahandbók Hagkaups mikið!! og af hverju kemur ekki Harry Potter út árlega svona til að redda jólagjöf handa litla bróður??!! Svoldið fyrirsjánlegt en samt...!

30 dagar til jóla
Last Christmass by Wham

2 comments:

Anonymous said...

Nú væri einmitt sniðug jólagjöf: Brekkusöngur með Árna Johnsen. Það virðist nebbla allstaðar vera kominn brekkusöngur... ekki bara í Eyjum... Það væri sniðugt að fá Árna Johnsen til að koma bara í garðinn hjá manni og syngja óskalög. Það væri cool. Töff jólagjöf handa famelíunni.
Eða bara svona gullkind. Það er mjög cool. Ég ætla að gefa öllum í fjölskyldunni minni verðlaunastyttu úr álpappír...

Laufey Sif said...

Get ekki sagt að mér finnist þetta gullfallegur drengur.. myndi ekki pota í hann held ég. :D