Saturday, November 04, 2006

Góðan dag!! Það hefur ekki verið svona gott veður síðan æeg bara veit ekki hvenær!! Alveg yndislegt veður! Sólin skín í heiði og fuglarnir syngja Bítlalög. All you need is love! Eða ekki. Veðrið úti er vægast sagt ömulegt. Vægast sagt. Á ég að segja bara viðbjóðslegt?? Það er ekki hægt að skýra þetta með einhveju öðru en að segja bara að veðrið úti er viðbjóður! Und míns er að fara að skemmta sér í kvöld og það er spáð alveg crazzzy roki! 20 metra á sek eða e-ð. Ég er að spá í að biðja gamla manninn á heimilinu að skutla mér á ballið. Því ekki tek ég taxa. Það er svo dýrt! Heldur labba ég og fýk bara til Grindavíkur eða e-ð en að taka leigubíl!! En samt einn ljós punktur. Það er ekki snjór og það er ekki hríð. Ef svo væri þá þyrfti maður kannski að dusta snjóinn undan pilsinu áður en maður gæti farið að höstla! Búin að vaða snjó upp í nára og það væri kaaaalt! Síðan var e-ð bull í fréttablaðinu í morgunn um að það yrðu rauð jól í ár. Common það er bara 4. nóv og þessir vitleysingar eru strax farnir að hóta rauðum jólum. Hvað á það að þýða?? Segi bara eins og Bogómíl Font veðurfræðingar ljúga!!

Hversu óhepin er hægt að vera??! Ókei smá forsaga. Fór með stelpunum í bíó á Mýrina (Vægt til orða tekið frábær mynd!) og ætluðum í 8 bíó en það var uppselt þannig það var ákveðið að fara í bíó kl 10. Og allt í goðu með það. Fórum heim til Sunnu og fórum í matador. Okei núna fara hörmungarnar að byrja! Það er þannig í matador að þú verður að fara yfir byrjunareitinn til að geta fengið 2000 kall og það má ekki lenda á honum því þá færðu engan 2000 kall! Einfalt. En í stuttu máli sagt þá spiluðum við 2 hringi og ég lenti tvisvar á byrjunarreitnum!!! Og í annað skiptið þarfti ég að borga 2000 kall í e-n helvítis skatt!! Óheppinn?? Þetta er ekki hægt!!

Á móti sól í ölfushöllinni í kvöld eftir svona nokkra tíma eða bara um miðnættið. Og ég á von á alveg geðveiku stuði í kvöld. Og bara skilja baseball kylfurnar eftir heima og alla hnífa og öll leiðindi mæta bara með góða skapið. Menn fara ekki með baseball kylfur á djammið. Ég skil ekki svoleiðis fólk. En ætti ég að biðja hann elsku Þóri minn um að spila afmælissönginn fyrir Binnu?? Jebb hún á afmæli á morgunn konan. Verður 20! Sko búin að ná mér. haha. Vonandi að hún lesi ekki bloggið mitt fyrir ball. Ég veit ekki hvað hún mundi gera við mig ef ég myndi láta verða af þessu. Hún yrði ekki sátt!!

Jólalagasamkeppni rásar 2 að fara í gang. Ætti maður að búa til lag??

Lag dagsins: Hver einasti dagur by Á móti sól (Þetta lag er geðveikt. Það er akkúrat ekkert íslenskt við þetta!!)

No comments: