Monday, November 13, 2006

Kannski komi tími á smá svona blog?? Æ-i ég veit það ekki. Nenni því ekki. Gamla settið er að fara stinga af til fokking kanarí það er spáð fokking 10 stiga frosti á fim sem er bara algjör viðbjóður og já mér er illt í hálsinum mig langar heim að sofa herbergið mitt er enþá í fokki verður hopefully málað um næstu helgi fór að sofa klukkan hálf 2 eða e-ð í nótt. OHHH mig langar bara til að kvarta!

Ljósi punkturinn er 100 íslensk jólalög sem er komin út núna með helling af flottum 80's jólalögum eins og Þú og ég (jólagjöfin mín í ár ekki metin er til fjár...9 og so videre. Inn galli samt. Þegar jólin koma með á móti sól er ekki á disknum sem mér fnnst bara skandall. Og það er ekki út af því að Magni er svo og svo vinsæll eða e-ð heldur er þetta eitt af mínum uppáhaldsjólalögum!!

Ég get sett elsku litla yarisinn minn inn í bílskúr á meðan mamma og pabbi eru úti. Sem er mjög gott þegar er spáð svona viðbjóð (-10 gráður) Sofandi námsstúlka fraus við það að skafa af bílnum sínum. Af hverju?? Hún sofnaði!!

Var að sjá drög að próftöflu í morgunn og samkvæmt henni er stæ prófið 2 des og svo þýs prófið 12 des. HALLÓ ER E-R HEIMA?? Á ég ekki að komast í jólafrí fyrr en 12 des?? Það er ekkert ömulegra en að bíða i heila viku eftir því að komast í síðasta prófið. Maður hættir að nenna að læra maður er alltaf að fara yfir það sama núliðin tíð í þýskuallan daginn í heila viku?? Ó mæ god!! veit ekki hvort ég meiki það. En athugið þetta voru bara drög að próftöfluþannig að þetta getur breyst!!

Lífið væri mun auðveldara ef maður gæti verið með vettlingana á höndunum alltaf!!

41 dagur til jóla

4 comments:

Laufey Sif said...

Það er ekki ljós punktur að topp 100 jólalögin séu kominn út kona ;) En gíraðu þig upp, þetta á eftir að vera langur vetur. I feel it in my fingers...!

Ágústa Arna said...

i feel it in my toes!!:) nei ég held að það hafi bara verið mán dauðans í gær. Svaf lítið og svona:)

Anonymous said...

er marr eikka fokkin' pisst...? hehe.
Míns var að downloda fullt af jólalögum, og á eftir að ná í fleiri...

Ágústa Arna said...

nei það var bara mánudagur af verstu gerð!!