Wednesday, November 08, 2006

Mig langar til að vitna aðeins í Sigga Storm: "Hér á Ísafirði verða svo hvít snjókorn"! Okei en af hverju var snjórinn á bílnum mínum þá bleikur í morgunn!! Er komin einhver veðurfræðilegur bleikur matarlitur?? E-ð sem gleymdist að kenna manni í náttúrugræði hérns í gamla daga?? Það er svo augljóst að snjórinn sé hvítur! döhh!

Á morgunn fer fram hin árlega söngkeppni nfsu og ég verð útkastari aka í gæslu. Er hlutverk mitt sem dyravörður í Hey þú hérna forðum daga að skila mér þessu hlutverki. Ég er komin í sömu stöðu og hann Már vinur minn. Og ég sem lít ekki út eins og dyravörður!! Eru það fordómar að líta á dyraverði sem frambærilega keppendur í worlds strongest men?? Ef svo er þá er ég ekki að fara í þá ágætu keppni

Það snjóar! Og inní mér er lítið jólabarn sem er staðsett rétt undir rifbeinunum sem gleðst mjög mikið enda ekki nema 46 dagar til jóla!

Lag dagsins: Þú trúir því by Sálin og gospelkór reykjavíkur (Bara flott það er e-ð svo tignalegt við þennan kór og svo blandast þetta tónlist sálarinnar og útkoman verður tær snilld!!)

1 comment:

Anonymous said...

hmm, bíddu.. ertu að segja að þann 24. desember muni skjótast út úr þér svona jólabarn sem kemur og stelur öllum jólagjöfunum og svona...??
En hey, við verðum að tékka á því hvað jól.is kostar...
Við gætum beðið um frjáls fjárframlög svo við getum keypt það, og svo gætum við stofnað paskar.is, oskudagur.is, sumardagurinnfyrsti.is og svo framvegis...svo nottla líka afmaeli.is, sem væri tileinkaður afmælinu mínu, þar sem fólk gæti lagt inn á mig afmælispening, og sent afmæliskveðjur til mín og afmælisgjafir. Ef þú ert jólabarn, þá er ég AFMÆLISBARN, allan ársins hring... (jú, maður á nú einu sinni afmæli á hverjum degi..)