Tuesday, December 26, 2006

Bara aðláta ykkur vita að það er ofát í gangi hérna búin að slafra í mig hangikjöti og laufabrauði búin að koma myndunum inn í tölvuna mína en samt er e-ð ves í gangi og þar sem gleymdist að gefa mér hæfileika þegar kemur að tölvum í jólagjöf þá þarf ég að fá utanaðkomandi aðstoð. Kannski ég tali bara við minn andlega leiðtoga sem er Magnús Má samkvæmt jólakortinu!Ég er ekkialveg búin að gera það upp við mig hvort andlegi leiðtoginn sé Magnús eða Bubbi. Ætti ég ekki að stelast í laufabrauðið og hugsa út í það á meðan??

Eitt enn: Magni fór út í þetta Rockstar ævintýri í sumar og brilleraði jarí jarí...síðan eru núna tónleikar í Háskólabíói þar sem Ámóti sól kemur fram en það er talað um magna og Á móti sól í auglýsingunni eins og magni hafi bara verið afleysingamaður í bandinu í 7 ár!! Næ þessu ekki

Lag dagsins: Annar í jólum by baggalútur

3 comments:

Anonymous said...

Míns langar á ÁMS/Dilana tónleikana 30.12...
Míns langar líka í ókeypis peninga!
Talandi um jólakort, þá er ég í seinni kantinum með jólakortin þetta árið.. En jólin eru nú alls ekki búin samt. Færð það allavega fyrir þrettándann...
Ég skal kenna þér að setja myndir inn if you want :)

Ágústa Arna said...

áms tóneikar 30.12?? ha??

Anonymous said...

heard it on the radio maður....!