Thursday, December 14, 2006

Fékk konfekt í gær. Jólagjöf frá Byko. Þegar ég las kortið sem fylgdi með pakkanum þá kvarflaði að mér að forstjórinn hefði handskrifað á kortin handa öllu starfsfólkinu sem eru örugglega svona nokkur þúsund en komst svo að því mér til mikilla vonbrigða að þetta var bara ljósritað á öll kortin. Bömmer!

300000 heimsóknir í Ikea síðan hún opnaði í október og þá er ég að tala um nýju búðina! Vá hvað vér íslendingar erum geðveikir!!

Jólalag dagsins: nei nei ekki um jólin by HLH flokkurinn

1 comment:

Anonymous said...

Míns langar í konfekt. Míns ætlar ábyggilega samt að fara að búa til konfekt um helgina. :)
Jamms. Sí jú.