Jæja þá er árið að verða búið og ekki seinna vænna en að fara að gera upp árið 2006 sem sumir segja að hafi verið svoldið keimlíkt frábærasta ári ever 1986 því að Jón páll varð hipp og kúl og Hemmi Gunn meikaði það aftur í sjónvarpi! Og íslendingar skitu á sig í eurovision '86 eins og Sylvía Nótt gerði svo eftirminnilega!
Maður ársisns: Magni-skellti sér til LA tók þátt í þessu rockstar dæmi og rúllaði þessu upp þó að hann vann ekki en samt vann hann samt
Geðveiki ársins: Íslenska þjóðin vakti og vakti og kusu og kusu magna okkar áfram! Við erum bara 300000 en ég veit ekki voru atkvæðin bara frá Íslandi 3 milljónir? Er þetta ekki geðveiki??
Heimkoma ársins hana á magni alveg skuldlaust!!
Lag ársins: Hver einasti dagur með Á móti sól
Sms ársins Dómínos smsið á aðfangadag
Afmæli ársins (fyrir utan mitt sjömanna!) asfmæli heilags Bubba Morthens og það í Laugardagshöll
Tónleikar ársins Get ekki gert upp á milli 060606 tónleikana með Bubba eða tónleika Sálarinnar og Gospelkórsins
Kór ársins Auðvitað Gospelkór reykjavíkur! Þessi kór er ótrúlegur!!
Ökumaður ársins Eyþór Arnalds!!
Stjórnmálamaður ársins Árni Johnsen
Óvæntasta ársins að Guðjón Valur skyldi vera valinn íþróttamaður ársins!!
Skandall ársins Sylvía nótt klúðraði eurovision algjörlega
Flopp ársins Íslenska dómskerfið floppaði algjörlega en eitt árið Þetta dómskerfi er orðið allt of langur brandari það verður að fara að breyta þessu!!
Skúrkur ársins Sylvía Nótt
Vinir ársins allir mínir yndislegu vinir:)
Ágústa ársins ég og hún Miss sverrisdóttir
1 comment:
Vá, æðislegur heiður að vera ein af tveimur Ágústum ársins..!! Ég get ei með orðum lýst hversu ánægð ég er. Fyrst af öllu vil ég þakka foreldrum mínum fyrir að búa mig til fyrir 19 árum síðan, og henni móður minni fyrir að ganga með mig í níu mánuði. Svo vil ég þakka honum afa mínum heitnum, fyrir að heita Ágúst, annars hefði ég mjög líklega heitið eitthvað allt annað...
Já, en...where do I get my trophy (verðlaunagripur)??
Post a Comment