Monday, December 11, 2006

Jæja góða kvöldið og gleðileg jól eða svona næstum því kannski!! Mikið að gera þessa dagana próf eða bara læra undir þýsku prófið sem er á morgunn klukkan 1/2 12 nánar til tekið!! já já! Búin að fá 2 einkannir sem sagt fallin í stæ (kemur ekki á óvart kannski!) og náði ensku 303 (og það í fjórða skiptið). Mér var reyndar búið að dreyma aðég hafi náð helvítis stærðfr. þarna en fallið í ensku var með 5 í stæ og 4 í ensku en þetta var eiginlega alveg öfugt. Fékk 4 í stæ og 5 í ensku! Ég vaknaði í sjokki að ég væri búin að falla í ensku í 4 skipti en sem betur fer var það ekki svo.

Jólagjafir. þvílíkur höfuðverkur maður!! Hvað á ég að elsku litla bróður?? Eða elsku stóra bróður litlu frændum mínum og já Hörpu mágkonu. Og já ef maður spyr fólk sem maður veit ekkert hvað maður á að gefa í jólagjöf þá er eiginlega BANNAÐ að segja æ-i ég veit það ekki!! Því þið getið bókað það að ekki veit ég það!! En getur fólk ekki bara gefið mér kærasta í jólagjöf?? Svo ég mæti ekki einu sinni enn án kærasta í jólaboð á jóladag!!

2 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með það (að ná enskunni).
Hvernig virkar það að fá kærasta í jólagjöf? Á þá manneskjan sem ætlar að gefa manni gjöfina...að hreinlega ráðast á einhvern gaur og vefja jólapappír utan um hann, og svo kemur einhver annar og setur límband og pakkaband?? Bara spyr...hehe. Svo veit gaurinn ekkert hvað hann er að gera undir einhverju jólatré meðan fólkið á heimilinu er að borða jólamat og svona...hehe.

Svo ég monti mig aftur::::: ÉG ER KOMIN MEÐ BÍLPRÓF!!!!!

Ágústa Arna said...

það eru til svona pakkar í bónus sem á stendur "hinn fullkomni karlmaður!" svona bósi ljósár pakki sem væri voða gott að fá í jólagjöf!:)

ég trúi ekki að þú sért komin með bílpróf ég er ekki búin að fara á rúntinnmeð þér!! síðan er spurinig hvort ég muni nokkuð þora með þér á rúntinn...