Wednesday, December 13, 2006

Úpsss..! Ég vakti Magnús svona rétt um hálf tvö í dag þega rég rölti á tveimur jafnfljótum að athuga hvort það væri kannski möguleiki að ég fengi sálar diskana mína sem ég er búin að vera á leiðinni að ná í svona í nokkra mánuði: Og vakti hann!! Þannig að ég held að ég hafi verið strokuð af jólakortalistanum hans. Eða með öðrum orðum þá fæ ég sennilega ekki jólakort hjá honum!! talandi um að senda jólakort. Hvernig toppa ég jólakortið sem ég fékk frá Heimi í fyrra þar sem ég var ávörpuð: Elsku Ágústa og börn!! Hvernig toppar maður þetta??!

Síðan þegar ég ætlaði að rölta mér heim þá sá ég að Ágústa sverris á rúntinum og hún tók migg upp í og ég verð bara að segja alveg eins og er þá er Ágústa alveg skrambi góður bílsstjóri!

Og hvað er að fólki sem segir að nýja james Bond lagið sé ekki eftirminnilegt?? Þetta er bara ógðeslega flott lag og ég er búin að sjá myndina! Byrjunaratriðið er bara flott!!

Jólalag dagsins: Happy xmass (the war is over)

3 comments:

Anonymous said...

Takk fyrir það, nafna. Já, ég verð að viðurkenna það, að ég er ekkert hrædd að keyra. Þó svo að það sé smá hálka og snjór og svona, þá er það bara fínt sko.
Jamm, talandi um jólakort, þá skal ég reyna að toppa afmæliskortið sem ég gaf þér í vor... Semsagt: Það verður enn skrautlegara..
Á mínu mun standa: Elsku Ágústa, börn og barnabörn. En maður splæsir kannski sér kortum á barnabarnabörnin þín....heh :P

Ágústa Arna said...

barnabarnabörnin mín eru svo mörg að þú þyrftir að eyða alveg svaðalega milu til að senda þeim öllum jólakort!

Anonymous said...

já, ókei. Þá skelli ég bara í eina jólakveðju á Rás 1 á aðfangadag...