Hmmm!!Er ekki fólk orðið gamalt þegar það á í erfiðleikum með video fjarstýringuna??
Ég vil bæði lifa og vona ég vil brenna upp af ást ég vil lifa með þér svona ég vil gleðjast eða þjást. Meðan leikur allt í lyndi líka þegar illa fer meðan lífið heldur áfram þá vil ég vera hjá þér
Þið hafið eflaust einhvern tíma hlustað á hina stórskemmtilegu Gettu betur keppni sem yfirleit fer fram á þessum árstíma. Mér finnst magnað þegar koma spurningar um lotukerfið og keppendur svara því bara númer hvað magnesíum er í lotukerfinu bara eins og þeir séu að gefa upp kennitöluna á vídeo leigunni!! Pælið í því!!
Annar riðillinn af þremur í eurovision undankeppninni er á lau og ég vona svo sannarlega fyrir hönd keppnina að stíllistarnir gleymi mistökunum síðan síðast með Guðmundar í Byrginu looka lækið endurtaki sig. Enda eru mennirnir hérna á myndunum ekkert vitund líkir þeim annars....jamm segi ekki meira gæti fengið lögguna heim til mín með kæru frá honum. Eða kannski stíllistunum!! Kannski móðga ég þá!! Og jújú það er herferð um það að maðr á að passa það að skrifa ekki illa um náungann Virkilega flott auglýsing!! Er oss íslendingum farið að fara fram þegar kemur að því að gera góða auglýsingar?? Maður spyr sig. En aftur að eurovision þá er ég búin að hlusta á öll lögin og það flottasta að mínu mati er lagið sem Jónsi flytur. Mikil power ballaða og mér heyrist að textinn fjalli um það þegar sá sem þú elskar fer illa með þig og svíkur þig. Segi það en og aftur að Talað við gluggann með meistara Bubba er flottasta svona ástarsorgarlag sem samið hefur verið. Textinn fjallar um ótrúlegann einmannaleika þegar sá sem þú elskar fer frá þér!! Væmið en okei!!

Hey...takið eftir takið eftir girlzzzzzzzz!! Við vorum að pæla í hitting in my place 2 feb sem er föstudagur (búin að panta húsið og svona) en síðan var ég að pæla núna er að byrja svona eurovision tími þar sem allar undankeppnirnar eru og svona og hvernig líat ykkur á að færa þetta því fram á laugardagskvöldið 3 feb og halda þá svona eurovision þorra hitting e-ð!! Nema að sjálfsögðu ekki með þorra mat enda er hann viðbjóður!! Fyrir utan það ósúra en samt! þannig ef við sleppum þorramatnum (ógeðinu) þá er þetta ekki neinn þorra hittingur sem segir sig svona nokkuð sjálft. Þannig how about að hafa svona skötu veislu?? Einhvern veginn held ég að það falli ekki í kramið en jæja! Endilega commentið á það hvernig ykkur lýst á lau 3 feb og svo hugmyndir að þemum búningum dönsum og hoppum!! Og kannski kokteilum!! (samanber kokteilinn á konukvöldinu!!)
Mynd tekinn fyrsta skóladaginn! Ekki beint glæsileg! Svoldið krumpin! Og það versta við að þetta er mynd sem er á netinu í sambandi við busaáfangann!! En engar áhyggjur þið komist ekki inn á myndina nema að hafa password inn á angel! haha!! þannig að ég ákvað að deila þessu með ykkur!!