Tuesday, January 23, 2007

Annar riðillinn af þremur í eurovision undankeppninni er á lau og ég vona svo sannarlega fyrir hönd keppnina að stíllistarnir gleymi mistökunum síðan síðast með Guðmundar í Byrginu looka lækið endurtaki sig. Enda eru mennirnir hérna á myndunum ekkert vitund líkir þeim annars....jamm segi ekki meira gæti fengið lögguna heim til mín með kæru frá honum. Eða kannski stíllistunum!! Kannski móðga ég þá!! Og jújú það er herferð um það að maðr á að passa það að skrifa ekki illa um náungann Virkilega flott auglýsing!! Er oss íslendingum farið að fara fram þegar kemur að því að gera góða auglýsingar?? Maður spyr sig. En aftur að eurovision þá er ég búin að hlusta á öll lögin og það flottasta að mínu mati er lagið sem Jónsi flytur. Mikil power ballaða og mér heyrist að textinn fjalli um það þegar sá sem þú elskar fer illa með þig og svíkur þig. Segi það en og aftur að Talað við gluggann með meistara Bubba er flottasta svona ástarsorgarlag sem samið hefur verið. Textinn fjallar um ótrúlegann einmannaleika þegar sá sem þú elskar fer frá þér!! Væmið en okei!!



Nát ferð á morgunn og svo já má ekki gleyma prison break í kvöld! Ég er að leita mér að lögfræðingum sem geta lögsótt fyrir mig þá sem skrifa helvítis þættina!! það má ekki láta þætti enda svona eins og síðasti þáttur endaði!! Þegar heyrðist bara Scofield....Scofield...úr símanum!! Ég bara meika bara ekki meira svona!!

3 comments:

Anonymous said...

Skipuleggilegg...
Jámm, við verðum að fara að skipuleggja þú veist hvað.... 3.2.'07!!

Anonymous said...

Hey, í sambandi við skipuleggidóteríið... Þetta stóð í stjörnuspánni minni fyrir daginn í dag:

'It's a great time for thinking and planning. Don't worry about short term versus long term; what matters now is getting as many ideas as possible in front of you. From these small seeds great things will come!'

Hehe...bara soldið fyndið..

Ágústa Arna said...

legg til eiríkur hauksson þema!!! eða dr gunni þá getum við sameinast allar inni á baði og krúnurakað okkur!!! sætt