Djöfull er kalt!!f
Ég veit það ekki en ég er að fíla snjóinn sem er kominn alveg í tonnavís! Mér finnst þetta æðislegt!! Bíllinn minn var fastur í skafl og alles en ég gat komð honum út úr skaflinum án hjálpar!! I'm so proud!! Var svo næstum því búin að fesa mig i einhverjum smá svona pínulitlum skafli í einhverju enginu. Shit hvað ég var hrædd!! hefði samt verið svo týpískt fyrir mig að festa mig í illa mokuðum hjólförum!!! Samt er ekki möguleiki að ég fái að setja yarisinn inn í bílskúr þó að það sé tonn af klaka á bílnum mínum og ég reyndi að væla út bílskúrinn en mínir elskulegu foreldrar komu með þvert nei eða meira með svona "...og láta bílinn minn standa úti!!" í svona hneykslunartóni dauðans. Spes!!!!
Undankeppni fyrir eurovision hefst á laugardaginn og maður bíður bara spenntur hvað gerist?? Hver ætlar að yaka að sér hlutverk Sylvíu Nætur og skandala all svaðalega?? Er það Bríet Sunna?? Fer hún í keppni við Heiðu um það hvor er ljóshærðari??
No comments:
Post a Comment