Hér eru smá leiðbeiningar um það hvernig á að taka þátt í gettu betur skrifað af manni sem er svona gettu betur nörd eins og menn geta verið eurovision nörd. Kannski koma þessar leiðbeiningar af gefnu tilefni!
Ái, ái, ái. Í gær gerðist það í þriðja sinn í sögu Spurningakeppni framhaldsskólanna að lið náði ekki nema tveimur stigum. Það var Iðnskólinn í Hafnarfirði sem mátti upplifa þennan skell. Ég þekki fólk sem slekkur á útvarpinu þegar svona lagað gerist. Það er einfaldlega afleitt útvarpsefni að hlusta á lið engjast með þessum hætti.
Fyrir nokkrum misserum hafði ég orð á því að liðum sem væru gjörsamlega úti á þekju færi fækkandi og að “veikari” skólarnir væru að taka sig á. Mér sýnist því miður að sú þróun sé að ganga til baka. Sumir skólar, jafnvel fjölmennar menntastofnanir, eru að spóla í sömu hjólförum ár eftir ár.
Hér eru nokkur einföld ráð til slakra liða sem vilja skríða upp í tveggja stafa töluna:
i) Verið búin að hlusta á a.m.k. eina keppni. Það er meira að segja hægt á netinu. Reynið að áætla hversu mörgum stigum þið hefðuð náð ef um skriflegt próf hefði verið að ræða. Segjum t.d. að það væru 13-14 stig, stefnið þá á 10-11. Þetta er talan sem þið eigið að hugsa um, ekki stigin hjá andstæðingunum.
ii) Gleymið hugtakinu “hraðaspurningar”. Það eru bara sterku liðin sem græða á því að fara mjög hratt yfir. Þetta er einfalt reikningsdæmi - lið sem svarar mjög hratt kemst yfir 5-6 spurningum meira en lið sem svarar mjög hægt. Til að ná þessum hraða er líklegt að hraðskreiða liðið klúðri tveimur svörum sem það hefði annars náð. Sá fórnarkostnaður borgar sig fyrir lið sem er með meira en helmingssvarhlutfall. Annars ekki. Fyrir mjög slakt lið getur hreinlega borgað sig að stoppa og ræða málin sín á milli þegar kemur að spurningu sem liðsmenn eiga að geta svarað. - Orðið “pass” er óvinur ykkar.
iii) Lesið Moggann og Fréttablaðið. Ef liðið var valið daginn fyrir keppni er augljóslega ekki hægt að sökkva sér oní lestur alfræðibóka. En ekki mæta á staðinn án þess að hafa lesið í gegnum Moggann og Fréttablaðið 1-2 daga fyrir keppni. Og þá er ég að tala um að renna í gegnum ALLT blaðið - leikhúsauglýsingarnar, stöðuna í fótboltanum, erlendar fréttir o.s.frv. Þetta er 2 klst. vinna en á að skila 2-3 stigum sem annars hefðu ekki komið.
iv) Takið æfingu í hraðaspurningum. Ekki pæla í því að láta semja spurningar fyrir það sérstaklega, enda eru gæðin á spurningunum ekkert atriði heldur það eitt að hafa prófað að svara hraðaspurningum áður en komið er fyrir framan hljóðnemann. Trivial Pursuit er fínt. Allt sem þið þurfið er einn samnemandi til að lesa Trivial pursuit-spurningar eins og hraðaspurningar í klukkutíma. Það tryggir 1-2 stig í viðbót.
v) Ef allt fer í steik í keppninni - EKKI reyna að bæta úr því með því að “slá á létta strengi”. Ekki fara að svara “Davíð Oddsson” og flissa í hvert sinn sem þið vitið ekki svarið - nema að markmiðið sé að uppskera andúð fólks heima í stofu
Annars er þessi nát ferð búin og ég er á lífi-kannski fyrir utan kal á fótunum!
No comments:
Post a Comment