Já góðann daginn góðann sunnudaginn! Og ég er búin að sjá það að ég er alveg ömuleg í svona eðlisfræði einhverju þannig...ekki spyrja mig ráða um eðlisfræði e-ð!
Annar riðillinn þremur í eurovision og x-factorog það er einhvern veginn það merkilegast sem sem er búið að vera í gangi um helgina. Og munurinn bara á þessu tvennu er alveg fáránlegur.Sviðið og öll myndvinnsla í xfactor var geðveik og svo horfði maður á eurovision í gær og það var svo...eftir á e-ð! Ég skil þetta ekki. Meira segja stíllistarnir í xfactor eru að vinna vinnuna sína miklu betur en nokkru sinni en stíllistarnir í eurovision! Eins og bara þegar var verið að kynna inn keppendurna í xfactor áður en þeir komu á svið var geðveikt! Og bara þessi munur sem er +a þessu tvennu er bara óskiljanlegur sérstaklega þegar það er staðreynd að sagafilm sér um umgjörðina á báðum þáttunum. En þessi Ellý. Hvað var það?? Gerði fátt annað en að rakka hann Palla og lögin sem hann valdi fyrir sína hópa sem voru frekar flott bara. Síðan hraunaði hún yfir HARA fyrir Girls just wanna have fun sem mér fannst gefa mér aðra sýn á lagið og ég heyri ekki bara Cyndí Lauper gaulið. Enda sást það líka í úrslitaþættinum hverjir það voru sem voru að gera góðu hlutina og það var ekki Ellý. En þessi Guðbjörg þarna röddin í barkanum á stúlkunni er algjört lögreglumál!! Halló hún er sextán og er með rödd eins og...ég veit ekki hvað!!
Segi það einu sinni en það er sárgrætilegt að fallegir karlmenn séu samkynhneigðir !! Samanber Páll Óskar
Var að fatta það að það þarf að kveikja á prentaranum áður en maður prentar út!!
No comments:
Post a Comment