Monday, March 19, 2007

Af hverju í ósköpunum eru helgarnar svona ógeðslega fljótar að líða??


Seila var með smá svona stelpuhittingá lau og í leiðinni þá frumsýndu Sheila og Karólína nýju kærastana sína þá mr Sheila og mr Karólína sem heita réttum nönum Þór og Sturla eða Stulli eins og við stelpurnar köllum hann! Alltaf gaman af svona stelpuhittingum og vá hvað maður þarf að gera þetta oftar en þetta stendur allt til bóta þegar við ztelpurnar verðum búnar að stofna saumablúbb og ég neyðist til að læra að prjóna. En hvað er saumaklúbbur annað en ástæða fyrir okkur ztelpurnar til að TALA!! Þannig að ég mun örugglega ekki taka prjónadótið með mér
Pakkhúsið.
Hvers konar staður er þetta eiginlega að verða?? jah maður spyr sig óneitanlega eftir laugardagskvöldið1 Ekkert nema skrýtið fólk (svona nánast og þá er ég ekki að segja að ég sé ekkert skrýtin tek það skýrt fram!!) og fólk sem kann ekki að dansa og er bara of drukkið eða
e-ð. Og er þetta bara ég eða eru það bara karlmenn sem geta ekki undir neinum kringumstæðum dansað nema þeir séu að æfa einhvers konar fagn að hætti Sveppa! þannig að ef þeir munu skora í leik gegn Barcelona þá munu þessir ágætu drengir skella sér í veiði á miðjum fótboltavellinum. Alla vega voru þeir að reyna að veiða e-ð á dansgólfinu en ahh ef þeir ætluðu að veiða mig í sín net þa´hefðu þeir þurft að breika!
Á svo erfit með að hlusta á u2 með einhverjum guðfræði gleraugum því fyrir mér er rokk bara rokk og ég get ekki sett guðfræði inn í flott lög eins og Elevation og City of blinding light eða One eða With or without you sem er flottast. En þátturinn Áfram gakk var samt góður og ég tek ofan fyrir mönnum sem geta sett texta úr Biblínni inn í tónlist sína. Bubbi gerði það meðal annars á plötunni tvíburinn.
Bara 10 skóladagar eftir og þá gott fólk er mín komin í páskafrí
Hvað er Nóa sírius að spá að byrja að auglýsa páskaegg svona löngu fyrir páska??

3 comments:

Anonymous said...

Ég þarf sko EKKI ástæðu til þess að blaðra úr mér vitið sko... En mér líst geðveikslega vel á hugmyndina um saumó, þannig að ég er alveg til í þetta, skal meira að segja bjóðast til þess að halda fyrsta klúbbinn... Við stelpurnar verðum bara að reyna að vera allar í bandi, og það er líka gott að nýta kannski bara páskafríið í eitthvað svona t.d.

Ágústa Arna said...

en ein spurning: tölum við mikið??!

getum við ekki haldið keppni þar sem við keppum í því hver talar mest??

Anonymous said...

Sko...það er ekki hægt. Vegna þess að maður talar mismunandi mikið við ýmsar aðstæður, og eftir því hvernig liggur á manni... Þannig að það er ekki hægt að bera það saman.
OG...svo getur maður líka talað og talað stanslaust þangað til að manni skortir súrefni, um ekkert, og samhengislaust..