Wednesday, March 28, 2007

Ég veit það ekki eru þessir páskaunngar ekki að gera sig??
Gott sjónvarpskvöld í gær prison break og shark sem eru báðir æðislegir þætti. Prirson break er e-ð sem á að banna af því að þeir eru svoooo spennandi að það er ekki fyndið. En pælið í því ef það væri e-ð svona í gangi in the reallity þar sem allt er gert til að drepa einhvern einstakling samanber Scofield og Lync. Það var komið á hann sök um að drepa mann sem er bróðir forsetans en þú veist að þú ert ekki sekur og alveg sama hvað þú alveg sama þú gerir það er einhverjar siðspilltar löggur eins og ógeðð Mahóný elta þig og þú getur ekkert gert. Allt sem þú hefur í höndunum öll gögn sem þú hefur í höndunum verður að engu þar sem á einhvern einkennilegan hátt þá kemst löggan alltaf að því hvað þú ert að gera eða hvar þú ætlar að fela þig. Mahóný er forhertur glæpamaður en samt er hann búin að koma á stefnumóti við michel þar sem hann sagðist vera Sucré og að helvítið hann T-Bag er á hóteli í Panama með peningana sem michael og lync áttu að fá. Þetta er svoldið flókið fyrir þá sem ekki hafa fylgst með en alveg ógðeslega spennandi! En tveir þættir eru eftir og hvað gerist í endann. Mun 2 séría enda eins fáránlega og 1 sería þar sem þeir hlupu út í nóttina og allt í einu þá kom bara creiditlisti!! þá varðég svoldið mikið ógeðsæega fúl
Shark eru æðislegir og maður sér líka að dómskerfíð í BNA er fullorðins en ekki svona grín eins og það er hérna. Og ef menn eru að kvarta yfir Litla-hrauni og segja að það sé slæmt þá hafa þeir ekki horft á viðtalið við Geir Þórisson sem situr í öryggisfangelsi í BNA og þarf að óttast um líf sitt á hverjum einasta degi. Hann framdi alvarlegan glæp en það á samt ekki að þúða það að hann eigi að lífa við hreint út sagt ómannúðlegar aðstæður í fangelsi þar sem þú kemur út ónýtur maður á eftir. það er e-ð sem venjulegar manneskjur geta ekki sætt sig við. Þó að dómskerfið í BNA sé betra en grínið hérna þar sem líf manneskjunnar er metið minna virði en peningar og þú getur komist upp með svívirðilegustu glæpi sem hafa afleiðingar á fórnarlambið fyrir lífstíð og fengið 3 mánaða dóm sem þú getur tekið út í fokking samfélagsþjónustu. En á meðan þá situr fórnarlambið eftir með sár sem aldrei gróa! Bara að pæla í þessu eftir að Stark þurfti að sitja inni eftir að háfa smánað réttinn. Á meðan maður getur nauðgað konu og fengið 12 mánaða dóm-skilorðsbundið! Og það er ekki í lagi!!!!!!!!!!!!!!!!!!
Var í handeroo áðan það sem var spurt um of augljóst dæmi svona eftir á en það var spurt um tónlistarkvikmynd og það var wizard of oz sem ég klikkaði á!
Hálfviti!
En páskaungana tek ég ekki út!!

No comments: