Thursday, March 08, 2007

Jæja! Akkúrat fyrir ári síðan á akkúrat þessum degi 8. mars var alþjóðlegur baráttudagur kvenna (hverjum kemur það á óvart að dagurinn skuli bera upp á sama dag ári síðar??) og þá setti ég saman lista yfir svona stelpulög sem ekki eru e-ð með britney Spears og jessicu Simpson. vandamálið er að ég setti listann með öllum stelpulögunum sem eru í uppáhaldi hjá mér in á síðuna í fyrra og kannski ekki miklu hægt að bæta við nema kannski:

Cranberries-Zombie
Lay Low-Pleace don't hate me

...þannig í tilefni þess að það er 8. dagur mánaðarins þá ætla ég að henda inn 8 lögum með leiðtoga lífs míns Bubba! Og ég sagði 8 þannig að þetta verður mikil innri barátta!

Bubbi-Kona ( af plötunni Kona sem var sjálfsvorkunnarplata eftir skilnað þannig engin pólítík heldur ástarsorg)
Bubbi-Sumar konur (af plötunni 3 heimar sem kom út 1994. Held að ég komi ekki til með að gleyma tilfinningunni sem hann setti í flutningin á þessu lagi á þorlákmessu tónleikunum '06. Hef engan mann heyrt hreinlega flytja nokkurt lag af sömu tilfinningu. Með öðrum orum þá var þetta gæsahúð fyrir allann peninginn!)
Bubbi-Talað við gluggann (kom fyrst á konu plötunni sem margir telja hans bestu plötuen ég mæli sérstaklega með útgáfunni á 060606 tónleikunum þar sem Stríð og friður perfornuðu með honum. sat með kökkinn fyrir framan sjónvarpið og skildi í fyrsta sinn textann. Hversu einmanna getur manneskjan orðið?? "stundum heyri ég hlátur í gólffjörum marra hjartað kippist við samt er ekkert hér" )
Bubbi ft. mx21-Gaukur í klukku (af plötunni 060606)
Bubbi-MB Rosinn ( af plötunni Ísbjarnablús )
Bubbi-Þeir hafa trúðinn en þá vantar trúbador (af plötunni lífið er ljúft )
Bubbi-Kossar án var (af plötunni Von)
Bubbi-Með vindinum kemur kvíðinn (af plötunni Allar áttir

Ég læt meistarann um að sjá um pólitíkana fyrir mig. En alla er þetta mitt inlegg í daginn!!

No comments: