Wednesday, March 21, 2007

Munið eftir Hellisbúanum sem var sýndur hérna fyrir nokkrum árum?? Þar sem Bjarni Haukur Þórsson fór á kostum í að tala um samskipti kynjanna. Þetta er e-ð það fyndnasta leikrit sem ég hef bara séð. En alla vega þá var komið inn á það að konur tala mikið (er það??) og mér fannst það merkilegt að hann nennti að telja hversu mörg konur láta út úr sér á dag og komst að því að það eru heil 5000 orð!!! Og það er bara standard. En hvað ef orðin eru búin klukkann svona hálf 5 og það er saumaklúbbur um kvöldið?? þarf hún þá bara að þegja í saumó??!!! Það bara gengur ekki upp þegar við konur erum annars vegar!!!! Karlar geta bara skellt sér á barinn og fengið sér bjór og innifalin í honum eru 500 orð en gildir það ekki um okkur konurnar?? Þurfum við bara að þegja?? Eða skella í sig svo 10 bjórum og mæta bara svoooooo hress í saumó að það er ekki fyndið:) Ég myndi alla vega fyrst prjóna undir áhrifum!!

Ég er samt komin með þá hugmynd að í næsta stelpuhitting þá förum við í keppni um það hver getur talað mest. Það er hægt að koma með rök gegn þessu eins og miss Sverrisdóttir kom með í komment kerfinu (lesist bara þar!) en ég er búin að finna lausn á öllum þessum vandamálum. Við erm bara með svona tæki á okkur sem mælir nákvæmlega allt sem okkur dettur í hug að láta út úr okkur allt stam og öll óhljóð! Og svo bara þegar kvöldið er búið þá tökum við mælana af okkur og sjáum það úr í eitt skipti fyrir öll! Og eftir það þarf ekki að rífast um það meir að ég tala meeeeeeeeest!!

Getið þið gefið mér ráð um það hvernig maður sleppur við afmæli sem manni langar ekki í!! Plís! Eða bara bjóðið mér í partý á föstudaginn langa....!

No comments: