U2 gerð skil á Rás 2 næstu sunnudagaÁfram gakk -Guðfræði U2 verður á dagskrá næstu fjóra sunnudaga kl. 15.00 á Rás 2...
Guðni Rúnar Agnarsson fjallar í fjögurra þátta röð um guðfræði einnar fremstu rokkhljómsveitar samtímans, U2 og freistar þess að túlka guðfræði sveitarinnar með því að taka undir með hrópinu: ,,Verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni". Tónlist U2 hrópar á hlustandann. Hún kallar til ábyrgðar og meðvitundar um afleiðingar gjörða mannanna. Tónlistin kallar á hlustandann til að fylgja Kristi, því í tónlist sveitarinnar bergmála orð Jesú Krists þegar hann kallar lærisveinana til sín: Fylg þú mér !
Ferill rokksveitarinnar nær yfir þrjátíu ár. Í þáttunum verður ekki fjallað um ferilinn heldur eingöngu guðfræðina sem endurspeglast í tónlist hljómsveitarinnar. Yfirskrift þáttanna er Áfram gakk. Undirtitlar þáttanna fjögurra eru: Í nafni Guðs föður, sonarins, og heilags anda, Amen.
Heimasíða sveitarinnar er www.U2.com
Ég vona að With or without you fái að hljóma og þá mun ég blazzzzzzzzzzzta!!
Lag sem er eitt af þem flottustu í heimi!!
No comments:
Post a Comment