Wednesday, April 25, 2007

Jæja...ég sit hérna mitt á meðal busa í nát þar sem þeir eru að ímynda sér að þeir séu pótitíkusar og eru að takast á um ímyndaðar stóriðjuframkvæmdir! Ég er samt farin að örvænta vegna þess að það var sagt í byrjun tímans að ef við myndum klára þetta ræðusæmi gætum við sofið út á morgunn sem ég er alveg til í en eins og allir vita þá eru busar ofsalega spes fólk og ég svei mér þá held að blessuðum busunum langi ekkert til að sofa út!! Spes þessir busar. Akkúrat núna er verið að rífast um ímyndaða olíuhreinsistöð sem er svoldið öðruvísi!

Herbergið mitt var tilbúið í lok nóvember nema að einu leiti. Það átti bara eftir að setja nokkrar myndir kannski 6. Eða 8! Tók 5 mínótur! En þessar myndir áttu að vera komnar upp fyrir jólin en ekki gerðist það! Svo áttu þær að vera komnar upp fyrir páska en nei ekki gekk það upp! Svo loksins í gær kvöldi fóru þessar myndir upp á vegg á 10 mín! Og apríl er að verða búin!!

No comments: