Tuesday, April 24, 2007

Úr fréttablaðinu í morgunn:

„Mér fannst það eiginlega of „heavy" að vera í þessum frakka. Útlitið á mér, með þetta síða hár var alveg nógu rokkað," bætir Eiríkur við en lýsti því yfir að leðurbuxurnar yrðu þó á sínum stað. „Þetta verður ekkert í líkingu við Gleðibankann, þar sem maður var píndur í búning og nokkur dansspor," bætir Eiríkur við

Og:

Grétar hefur áður hannað leðurfatnað á lögregluna og Skítamóral og gerir sér fyllilega ljóst að hans bíður vandasamt verk sem þjóðin mun fylgjast grannt með. „Eiríkur er mesti rokkari landsins og hefur margoft keypt föt af mér," segir Grétar. „En fólk verður að styðja mig í því að halda þessu leyndu enda á þetta að koma á óvart," bætir Grétar við. „Þetta er líka áhugamál hjá mér; að gera vel fyrir Eirík og ég mun vinna nótt sem nýtan dag við að gera þetta sem glæsilegast úr garði," útskýrir Garðar. „Ég get þó lofað því að hann verður ROSALEGUR!"

Og:

Sigurður Freyr Björnsson, hjá BaseCamp, vildi ekki láta mikið uppi um fatnað Eiríks en sagði þó að fókusinn yrði á leður. „Við erum ekki bara að skoða föt sem Eiríkur verður í á sviðinu heldur líka dags daglega enda er Eiríkur í beinni allan tímann þegar hann er loksins lentur í Helsinki og stígur út fyrir hótelherbergið," sagði Sigurður Freyr.

Ætlar engin í alvöru að stoppa það að Eiríkur verði í leðri?? Hvað með flauel?? Ætla feministar ekki að mótmæla því kröftuglega að maður um fimmtugt verði í leðri í eurovision?? Ég meina mér er bara annt um ímynd landsins út á við og ég held að það ætti að reyna að koma Eika í hör eða í svona geðveikt gróft flauel og svo er bara Gleðibanka uniformið alltaf klassískt! Mæli með því! Ég skal stíllisera því mér langar á eurovision!

Eurovision lag dagsins: Gleðibankinn by Icy

No comments: