Monday, April 23, 2007

Sendi litla bróðir á stóra tónlistarmarkaðinn fyrir mig á sumardaginn fyrsta eða hann var að fara svo ég bað hann um að kippa með 3 sólóplötu Bubba sem er eins og sést hér á mundinni afskaplega fáklæddur þó svo að ég horfi ekki þannig á hann. en alla vega er þetta stór góð plata þar sem finna má meðal annars lagið Afgan sem Spaugstofunni yrði seint fyrirgefið að afbaka og lög og regla! Ég er að reyna að safna öllu Bubba stöffi sem til er alla vega meirihlutanum af því sérstaklega endurútgáfunum frá 1980-1990! Ég á afmæli í bikunni! *blikk blikk*

Fínasta helgi!

Grillpartý hjá Hjalta! Og það verður að segjast að það er ógðeslega gaman að fara svona allir saman að versla og kaupa kannski franskar fyrir 750 kall sem nóta bena var ekki það mikið þegar það var komið í skálar eins og það hljómar að segja hey ég ætla að fá franskar fyrir 750 kall! Það átti að vera 1000 kall fyrst en það var talið allt of mikið! Eða hlómar franskar fyrir 1000 kall bara eins og mont everest eða e-ð! Og ó mæ god ég fékk hláturs kast fyrir allann peninginn! Og eins og þeir sem þekkja mig þá er ég frekar hávær þegar ég missi það úr hlátri og já ég missti það úr hlátri!! Og við vorum í hvísluleik! Simple mind-simple pleasure!!

Í gær var verið að vísitera ættingjanna! Ég og aður nefndur litli bróðir skelltum okkur til afa og ömmu í sveitinni í gær og vá hvað þau eru mikil krútt!! Bæði pínu lítil fara sennilega minnkandi með árunum svei mér þá og eru hreinlega krúttleg eldri hjón!

Fórum svo til óskars frænda og elduðum með honum e-ð svona gúmmílaði dót e-ð!

Skrifaði minn fyrsta geisladisk í gær og eg er svo ánægð með að mér ekki tölvunördinu hafi tekist að skrifa geisladisk að það er ekki fyndið! Innihaldið var:
1. sálin og gospel
2-3 live
4-5 robbie williams
6 snow patrol
7 radiohead
síðan var eitt með david bowie 2 80's eitt bubba lag bell and sebastian sem sándar ógðeslega flott og eitt með zutions en gullfiskaminnið segir all verulega til sín núna! er ekki til e-ð við þessu??

Eurovisionlag dagsins: Fæy on the wings of love by Olsen brothers

það eru 17 og 19 daga í eurovision! Okei nú er þetta að verða flókið!!

Vona að Eiki sé með stillista sem er með vit í kollinum sem bannar honum að vera í leðurbuxum! Og núna loksins er maður farin að heyra lagið á ensku það er ekki lengur Ég les lófa þínum heldur er orðið að valentine lost. En ég fer ekki ofan að því að textinn er ógeðslega flókinn og það er að trufla mig alveg svaðalega!!

3 comments:

Anonymous said...

Og hvað á að gera á afmælinu skvís?

Ágústa Arna said...

bara að taka því rólega fá 2 pör af ömmu og afa í kaffi og kokur og svona!!

Anonymous said...

ok:)