Wednesday, May 30, 2007

Ég öskraði bara á móti"

Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.isHulda Sigurðardóttir má teljast heppin að hafa ekki slasað sig þegar hún fékk gæs inn um framrúðuna hjá sér sl. mánudag. Hulda var ein í bíl sínum að aka skammt frá ferðamannamiðstöðinni við Gullfoss þegar hún mætti gæsinni.
„Þetta gerðist allt mjög hratt. Ég var að keyra í rólegheitum þegar ég sá gæs fljúga á móti mér. Mér fannst hún vera á mikilli ferð og reyndi að draga úr hraðanum, en hún kom bara beint inn um rúðuna hjá mér. Hún féll svo niður í farþegasætið. Gæsin öskraði alveg svakalega, en datt svo niður á gólfið og drapst," sagði Hulda þegar hún var beðin að lýsa því sem gerðist. Hún sagði að þetta hefði verið stór og mikil gæs og hálf rúðan farið í mask.
Nánar er rætt við Huldu í Morgunblaðinu í dag
.

"Gæsin flýgur á rúðunni eða er hún að fljúga í augun á mér"! Þetta stór skemmtilega textabrot er úr hinu stór skemmtilega útilegulagi Mér finnst rigningin góð nananana oóó og allt það en samt er þetta að öðlast algjörlega nýja merkingu!!

No comments: