Hellú! Bara svo þið vitið það þá er ég ekki alveg að nenna þessu pup quiz dæmi enda ekki kannski ekki beint þáttaka en það er hið besta má. Síðan er maður líka að læra undir próf eða á að vera að gera það!
You tube er schnilld ef þið visuuð það ekki en ég var að skrá mig þar inn áðn og ætlaði að setja inn e-ð skemmtilegt en neinei þá er bara e-ð ves í gangi sem er svoooo týpískt þegar ég á í hlut að það er ekki fyndið enda ekki beint svona crazy tölvunörd þannig...Hjálp einhver sem kann á tölvur!! Meina maður er að reyna að vera pínu svona nútíma e-ð! Sem er samt ekki að ganga neitt vel eins og sést á youtube ævintýrum mínu!!
Fór í bæinn í gær með Ágústu Sv Karólínu Þór og Söru þar sem planið var að fara í keilu en nei það var allt uppselt og svona þannig þá var bara gripið til þess ráðs að skella sér í bíó á myndina Next sem er um mann semvar með þann magnaða hæfileika að geta séð 2 mín fram í tímann! E-ð sem maður gæti kannski nýtt sér e-n tíma að vita hvort maður myndi hitta mr Rightkannski í kaffi Hljómalind eða hvort hann mun kannnski klessa aftan á mann á Austurveginum-og að sjálfsögðu þá er hann órétti! En hann stingur ekki af eins og gæinn sem keyrði aftan á mig hérna forðum! Ég veit það er ljótt að tala illa um fólk sem maður þekkir ekki en ég bara verð...Helvítis hálfvitinn!!
Svona sólarhrings opnunarverslanir sem eru víða í Borg Óttans eru spes fyrirbæri! Kíktum aðeins í 10-11 í Engihalla (held ég) og verðað segja það að þjónustulundin skein ekki af gæjanum sem afgreiddi þarna. Og annað hann var með talsstöð sem ég er ekki alveg að ná hvaða tilgangi þjónaði en allt í lagi. En mjög sniðugt samt ef það koma gestir klukkan hálf 2 e-ð að geta bara skellt sér í 10 11 og keypt kókómjók og osta eða e-ð! Og hvenær ver'ur það að veruleika að maður getur keypt lét vín í 10 11?? Þá þarf maður ekki að bjóða gestunum bara upp á kókómjók og osta heldur rauðvín og osta!!
Shit hvað ég hlakka til 12 maí!! Ómæ god ég er að sauma á mig dress eins og Sandra Kim var í þegar hún vann eurovision '86. Hvítur jakki og ógeðslega bleikar buxur!! Og það besta við þetta allt saman þá verður allt þetta kosningakjaftæði búið og lífið verður bara eins og það á að ver!!Ég ætla ekki einu sinni að reyna að útskýra það hversu mikið auglýsingarnar frá Samfylkingunni fara í taugarnar á mér! Ég bara trúi því ekki að auglýsingastofan sem gerði þessar auglýsingar líti á þessar auglýsingar sem góða auglýsingu fyrir sig!! Náðuð þið þessu??
No comments:
Post a Comment