Jæja það eru einungis 8 og 10 dagar í eurovision (ég er ekki að segja að þetta sé einfalt) og í tilefni að því þá kemur hér fyrsti flokkur af sex í eurovision pub quiz ala Ágústa! Flokkarnir munu koma inn jafn óðum og verða úrslit ekki tilkynnt fyrr en seinni partinn fimmtudaginn 10. maí eða alla vega áður en undankeppnin byrjar en hún byrjar klukkann 7 10 maí á slaginu!
Reglurnar eru einfaldar
6 flokkar 7 spurningar í hverjum flokk
Spurningum er svarað í kommnet kerfin hér að neðan
Ef um nei eða já spurningu er að ræða þá er það tekið fram í spurningunni
Bannað er að nota leitarvélar eins og google yahoo æ-i bara leitarvélar almennt alveg sama hvað þær heita sem og eurovision síðuna inn á ruv.is og allar almennar eurovision síður sem við nördarnir skoðum í aðdraganda eurovision!
Ef þið lendið í vandræðum þá bara smsið eða rífist við mig á msn ef þið eruð svo heppin að ég sé á msn:) Ég er einmitt að spá í því að skipta um númer bara svo fólk hringi ekki í mig á nóttunni nei ég segi svona:P
Keppt er um nafnbótina Eurovisionnörd djammstrumpsins 2007!!
Here it is:
Flokkur#1: Íslensku undankeppnirnar
1. Hverjir voru kynnar í íslensku undankeppninni árið 2006?
2. var haldin undankeppni árið 1995? (já eða nei spurning)
3. Hvað hefur Birgitta haukdal tekið oft þátt í undankeppninni?
4. Hefur Kolbrún Halldórsdóttir verið kynnir í undankppninni? (já eða nei spurning)
5. Nína sigraði í undankeppninni 1991. Hvað fékk Nína mörg stig?
6. Hvaða laga varð í öðru sæti árið 2003 og hverjir fluttu?
7. 5 manna dómnefnd valdi Gleðibankann sem framlag íslendinga árið 1986. Hvaða 5 einstaklingar sátu í þessari dómnefnd?
þar hafiði það elsku litlu eurovision nördarnir mínir!!
Svona by the way þá er ég að hlusta á útvarpsstöð á netinu sem spilar BARA eurovision lög! Sick anyone??
3 comments:
1. Garðar Thór Cortez og Brynhildur úr Stelpunum.
2. Nei, það var ekki undankeppni.
3. Birgitta hefur tekið þátt þrisvar.
4. Kolbrún Halldórs...? Já
5. Nína fékk 19 stig eða eitthvað. Giska á 19.
6. Öðru sæti 2003... Man ekki. Pass.
7. Keine og Ahnung. Man ekki meira.
sorry, vil leiðrétta svar eitt núna, man það alltí einu að það er ekki z í ættarnafni Garðars... Það er Cortes.
1.Garðar Thór og Brynhildur
2. Nei
3. 3 sinnum
4. nei
5. 30
6. Ísland, Selma B.
7. uuuu. Eiríkur Hauksson KK raggi Bjarna, Páll Óskar og 50 cent.
Post a Comment