Monday, May 21, 2007


Jæja var að koma af hámenningarlegum orgeltónleikum þar sem fluttir voru orgel konsertar eftir bach og einhverja fleiri sem ég náði nú ekki nafninu á. Svona rússnesk svona sem erfitt er að bera fram eins og maður sér þegar íþróttafréttamenn eiga í vandræðum með að bera fram nöfnin á rússneskum hlaupurun!Nei ég segi svona ég var ekki á hámenningarlegum orgeltónleikum enda hefðiég aldrei meikað það! En ég var á tónleikum og það menningarlegum að mínu mati með kyntröllinu(??) Jóni Ólafs og ó mæ god hvað maðurinn er fyndin! Og ég var reyndar næstum búin að missa mig úr hlátri nnokkrum sinnum yfir því hvað maðurinn getur grettir sig þegar hann spilar á píanó það er ógeðslega fyndið! Hann svona hálf partinn setur hausinn áog eins og ég segi þá er hann í svona skemmtilegri grettukeppni þarna við flýgilinn

!!


Talandi um Jón Ólafsson sem var í fyrstu útgáfunni af Sálinni sem sjónvarpsmaðurinn fallegi ÞorsteinnJ setti saman 1987 (míns var 1 árs!) en af hverju skyldi ég vera að bulla um allt þetta (totally useless information!) júbb ég var á saálarballi um helgina eins og kom svo skýrt fram hérna um daginn og það var sko ekki leiðinlegt skal ég segja ykku! Fyrir utan það að það var eins og staffið á Nasa væru fullkomnir amatörar þegar kemur að því að búa til raðir það var ekki búið að setja upp línuna fyrir miðaröðina og svo er það þannig að eegar kemur að því að íslendingar eiga að vera í biðröð þá eru þeir algjörlega fullkomnir amatörar +í því halda að þeir græði svo mikið á því að vera fremstir en ef þú ert með miða þá ertu seif um að komast inn á staðinn en nei ekki skilja íslendingar það! En vá hvða þeir eru góðir!! Og Stebbi er snilldarsinger þannig að einhvern vegin gat þetta bara ekki klikkað!


Orð dagsins er tekið úr lagi sem ber afskaplega hádleygan titil eða Afstæðiskenning ástarinnar eftir títt nefnda Jón Ólafsson en textinn er eftir Hallgrím Helgason sem er sköllóttur rithöfundur en allt í lagi:


Ef þú ekki værir værir eins og þú værir þá væriru ekki sú sem ég elska dag og nótt


Jahá!!

No comments: