Kvöldið...!
Nú er mín orðin ein af strákunum í timburskemmunni! Sem er ágæt að vera bara úti að týna rusl en það sem flestir vita sem þekkja mig vita þá get ég ekki lifað án tónlistar en það er einmitt að pirra mig all svaðalega núna er að ég get ekki sett neitt inn á mp3 spilarann minn og síðan á ég að eiga einhversstaðar lítið vasaútvarð sem ég finn ekki núna þannig að ég er ekki að fíla það að vera í heila fimm kli-ukkustundir án tónlistar og þurfa að vera með lög eins og Bubba lagið "hann elskar mig ekki" á heilanum en það lag er reyndar mjög flott en samt ekki málið að vera með það á heilanum í 5 tíma! Síðan þá er verið að saka mig um að vera með klámkjaft þegar ég læt úr úr mér frasa eins og ó mæ god eins stelpulega eins og ég get en ég held samt að karlmenn geta misskilið allt!
2 comments:
Ég á svona heyrnartól með útvarpi, sem ég notaði þegar ég var að vinna í Mjólkurbúinu. Síðan á ég líka lítið svona vasaútvarp sem er á stærð við mp3 spilara. Ef þig vantar...
Vá skil þig vel að meika ekki að hafa ekki tónlist, það má ekki einu sinni spila tónlist í vinnunni minni og þess vegna er ég mjög oft með sama lagið á heilanum allan daginn!
Post a Comment