Wednesday, June 20, 2007

Höfðu afskipti af skjaldböku á Skutulsfjarðarbraut

Lögreglumenn á Ísafirði þurftu að hafa afskipti af skjaldböku sem gekk hægum en öruggum skrefum norður Skutulsfjarðarbraut á tólfta tímanum í dag. Ökumaður tók frammúr skjaldbökunni á fullkomlega löglegan hátt að því best er vitað, enda er 60 km/klst hámarkshraði á veginum og ólíklegt að dýrið hafi náð þeim hraða. „Skjaldbökunni var boðið far á lögreglustöðina á Ísafirði hvar hún hvíldi lúin bein. Ekki er vitað hvaðan skjaldbakan kom en grunur leikur á að hún hafi stungið eiganda sinn af. Náttúrustofa Vestfjarða fékk dýrið til varðveislu, en eins og flestir vita er innflutningur slíkra dýra bannaður“, segir í tilkynningu frá lögr

Ég hefði nú fyrst haft áhuggjur hefði skjaldbakan tekið fram úr mér!!

3 comments:

Laufey Sif said...

Hehe..furðuverur þarna á Vestfirðum ;)

Anonymous said...

Ég get ekki sagt að ÉG hafi verið nein skjaldbaka í umferðinni undanfarið.......................
Hehe... (óþarfi að útskýra eitthvað frekar...)

Já, en allavega, þá er þetta fyrsta kommentið mitt á þinni síðu eftir að ég varð 19 ára. Semsagt, þá er ég virkilega farin að kvíða fyrir því að nálgast að komast á þrítugsaldurinn..hehe.

Heyrumst. (Er komin í tveggja daga frí, en ætla sko heldur betur að sofa út...)

Ágústa Arna said...

nei pældu í því að vera kannski krúsa svona á 80-90 (löglega!) og allt í einu þá tæki skjaldbaka sem nóta bene er ekki þekkt fyrir hratt yfir fram úr þér!! Ég held að maður fengi svona vægt sjokk vægt til orða tekið!!