Jæja það er sunnudagskvöld og vinna á morgunn sem ég veit ekki hvort verður gaman því það er spáð rigningu á morgunn og þá er ég bara inn að sópa sem er ekkert sérstaklega gaman!
Það er kannski tímanna tákn að loksins þegar Jón Góði Ólafsson kemur úr felum og talar á einlægu nótunum um samband sitt og Hildar Völu þá hefur enginn áhuga á því heldur eru allir að pæla í því hvort "Það er gott að búa í Kópavogi" kallinn sé fastagestur á Gullfngri sem er ekkert skemmtilegur skemmtistaður í Klobbavogi...ég meina Kópavogi! Mér finnst Jón Ólafsson mikiðð merklegri karakter en Gunnar I Birgisson og viðtalið við hann var býsna skemmtilegt þó svo okei ég las greinina um Gullfingur sem er með því ógeðslegra sem ég hef lesið!! Gerir mig svoldið reiða ég get ekki að því gert! En aftr að Jóni Ólafs þá er þetta svoldið fyndið í ljósi þess að þegar hann og Hildur Vala byrjuðu saman þá missti þjóðin sig það lá sko við að útsending RÚV yrði rofin til að koma þessum skilaboðum til þjóðarinnar og ég veit ekki hvað og hvað! Svo loksins þegar hann talar um sambandið þá vekur það akkúrat enga athygli!
Lag dagsins: Flugvélar by Nýdönsk
No comments:
Post a Comment