Wednesday, June 27, 2007

Nágranni minn er að mála húsið hjá sér. Sem er hið besta mál. Þessi nágranni minn hefur þau völd að geta ráðið því hvort ég hafi vinnu eða ekki. Hann spurði mig sem sagt hvort ég væri ekki að fíla litinn á húsinu. Auðvitað! hrökk upp úr mér þó svo að ég væri ekki að segja sannleikann því ég gat ekki farið að segja verslunarstjóranum sannleikann um að liturinn á húsinu hans sé ekki að gera sig! My opinion (með von um að hann komi aldrei til að lesa þessa síðu mína!) er að það hefði alveg mátt fara fram umhverfismat áður en húsið var málað því liturinn er svona ljós grænn einhvern veginn semer ekki töff!! Ég samt reyndi að gefa honum hint um skoðunn mína á litnum með því að spyrja af hverju ekki bleikt?? En hann fór að hlægja en hann er einn af fáum sem hefur lært það í gegnum tíðina að taka mig ekki alvarlega. Liturinn er ekki flottur en ég lýg því að þetta er yfirmaður minn og ég geri allt (svona inn að siðsamlegu marki) til að haldas vinnunni þaðer að segja að sópa í timburskemmu BYKÓ! Æði!!

3 comments:

Anonymous said...

Hahaha smart alveg spurning að rúnta í úthagann og tékka á óköpunum! kv. Gugga

Laufey Sif said...

*sleikja rass* leikurinn er alltaf skemmtilegur!! ;)

Anonymous said...

Já, af hverju ekki bleikur???