Sunday, July 29, 2007

Jæja þá er maður orðin nútímavæddur og komin meðþráðlaust internet þannig að ég sit hérna og blogga í rúminu mínu og það undir sæng! Ohh hvað það er næs! Er að hlusta á e-ð þjóðhátíðarútvarp sem er á netinu og láta mig langa á þjóðhátíð! Er e-r game á Þjóðhátíð það reyndar spáir snargeðveiku veðri en þá er bara að drekka meira ekki það að ég drekki en það er ekki langt síðan að ég fór í ríkið í fyrsta skipti til að kaupa áfengi! Ekki fyrir mig heldur fyrir aðra! Tek það skýrt fram!
Hæ:!

Saturday, July 28, 2007

Taka tvö með myndirnar úr brúkaupinu hjá Sheilu og Stulla













































































Ég þori ekki að skrifa neinn texta við því þetta gæti allt þá hreinlega farið til andskotans og ég er ekki að nenna að gera þetta í þriðja sinn þannig enjoy!
Ég á samt myndir sem évoru teknar heima hjá sunnu um daginn sem ég held að stelpurnar vilji kannsk ekki að fari út á meðal almenings! Til að hressa upp á minnið hjá þeim sem vor á staðnum þá var Mrs Sverrisdóttir í æðislegum svefngalsa!!

Friday, July 27, 2007

Ég var búin að vera geeeeðveikt dugleg við að setja inn myndir úr brúðkaupinu hjá Sheilu og Stulla en nei nei haldiði ekki að helvítis talvan hafi frosnað!!!!!!!!!!!!!! Og allt sem ég var búin að setja inn datt út!!!!!!!!!!!!!!! Og vitiði að ég er ekki alveg ready í það að fara að gera allt aftur...en kannski á morgunn!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! URRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRRR! Ekki sátt!

En ég er í fríi á laugardaginn sunnudaginn mánudaginn þriðjudaginn miðvikudaginn fimmtudaginn föstudaginn laugardaginn sunnudaginn og mánudaginn! Ég er sem sagt í viku fríi sem er mjög mjög næs!

Tæpir 2 tímar í Simpson á íslensku og ég er að spá hvar fær maðr áfallahjálp??

Samkvæmt mæspeisinu hjá Páli Óskari þá verður hann víst í einhverri höll á selfossi þann 1 sept '07. Ég er ekki með á hreinu en þar er samahvar elskan hann Palli verður i'll be there!!

Reyni að púsla mér saman andlega og henda myndunum inn á morgun eða e-ð!

Segjum við ekki bara allt fyrir ástina....

Fyrsta myndin sem ég set inn á bloggið mitt...


Önnur myndin sem ég set inn á bloggið mitt...


Þriðja myndin sem ég set inn á bloggið mitt...

Ekki tölvunördinu mér tókst að setja inn myndir!! Should we say craaaaaaaaaaaazy!!:)
Ef mér tekst það sem ég er að fara að reyna fæ ég meistaragráðu í tölvunarfræði án þess að fara í skóla!!

Thursday, July 26, 2007

Var apð koma af dass Kruz sem hefur tekið við hlutverki djammóðra á self eftir að Pakkhúsið lauk keppni! Þetta er skeeeelfilegt í fokking 5000 manna sveitarfélagi er engin hvelvítis skemmtistaður!!
Það var viðtal við íslensku útgáfuna af Simpson familíunni í Kastljósinu áðan en íslenska útgáfan voru þau Örn Árnason (Hómer!) Sigrún Edda Björnsdóttir (Bart!) og Álfrún Örnólfsdóttir (Lísa!)og mér til mikillar furðu þá voru þau ekki gul eins og hin í amerikunni! En þetta var útúrdúr! Það kom fram hjá þeim í kastljósinu að það var ekki einhver snillingurinn hér á klakanum sem fékk þá fáránlegu flugu í höfuðið að það væri bara ógeðslega sniðugt að setja Hómer og co á íslensku heldur var þetta talsetningar rugl skipun að ofan!! Kannski ekki frá Guði sjálfum heldur frá pródúsentum þáttanna úti!! Og þessir kallar þarna úti hafa pottþétt ekki heyrt íslensku og hvað það getur verið spes tungumál! síðan verur þeim sent eintak af myndinni á íslensku og óme god hvað þeir eiga eftir að fá mikið sjokk þegar þeir fá að heyra að þetta er hreinlega mannréttindabrot að þurfa að hlusta á Hómer tala íslensku og allt það!! Ég er búin að sjá auglýsinguna og eftir því sem mér heyrist þá er hin íslenska Marge ekki að gera sig! Vægt til orða tekið!
Litli frændi minn Sigurdór Helgi sem verður 8 ára spurði mig hvort ég væri til í að fara með honum á Simson á íslensku og eg var af einhverjum ástæðum mjög fljót að segja nei Og fékk kaldann hroll eftir bakinu!!

Tuesday, July 24, 2007

Jahh góða kvöldið...!

Brúðkaupið hjá Sheilu var á sunnudaginn og það var alveg ofsalega fallegur dagur og Sheila leit út eins og prinsessaí einhverjum fallegasta brúðarkjól sem ég hef séð lengi ! Spurning hvort maður fái hann lánaðan eftir svona 10-20 ár þegar maður verður búin að finna þann eina rétta! Ætla að taka mér góðan tíma í þetta! En eins og ég sagði þá átti Sheila þennan dag alveg skuldlaust wn sunnu dagurinn var alls ekki dagurinn minn!

Vá hvað ég nenni ekki að blogga akkúrat núna!!

Verslunarmannahelgin! Magnað hvað það er lítið af upplýsingum inn á henni!

Herdíz! Kassadama í BYKO sem er alltaf í bubbles!:)

Saturday, July 21, 2007

Vil bara benda fólki á að sá ágæti þýðandi sem þýðir So you think you can dance þýðir So you think you can dance sem Dansstjörnuleitina!! jahá...

Wednesday, July 18, 2007

Nú dass útihátíðarseasonið að byrja og satt að segja þá geta útíhátíður floppað vegna þess að það vantar fólk til að jamma! Dr gunni er búin að gera smá lista yfir útihátíðir sem gætu floppað vegna...hver annars mætir á útihátíð sem gengur út á detox?? Og það hjá Jónínu Ben sem er önnur sorglegasta manneskja íslands á eftir þeim sorglegasta-Geir Ólafs!!!

Topp 10 – Fámennustu útihátíðirnar

10 Stóri gúrkudagurinn í Hveragerði. Íbúar Hveragerðis bjóða upp á ókeypis gúrkur.

9 Mosi 2007 – Áhugafólk um mosa heldur sína árlegu mosahátíð á Núpi.

8 Friðarhátíð Friðar 2000 á Fáskrúðsfirði. Forsetaframboði Ástþórs verður formlega tilkynnt.

7 Wartburginn 2007 – Wartburg-eigendur hittast með bílana sína á Hólmavík.

6 Viðey 2007 – höldum upp á 23 ára afmæli Viðeyjarhátíðarinnar. Hljómsveit Magnúsarar Kjartansson leikur fyrir dansi.

5 Esperanto 2007 - Áhugamenn um Esperanto hittast undir Eyjafjöllum. Insol og Gissur Björn Eiríksson flytja lög sín á esperanto.

4 Detox 2007 – hópstólpípunámskeið með Jónínu Ben í Hrísey.

3 Veggjalúsin 2007 – endurvekjum gömlu góðu Byrgis-stemminguna.

2 Marhnúturinn 2007 – Marhnútar veiddir og grillaðir á Patreksfirði.

1 Símaskráin 2007 – áhugafólk um símaskránna hittast á Melrakkasléttu. Ljóðskáld lesa upp úr símaskránni og Kammerkór Kjalanes frumflytur verkið Síma, líma, símaskrá eftir Atla Heimi.

Búin að kaupa brúðargjöf handa Sheilu og Stulla! Þannig að ég er farin að hlakka enþá meira til að fara í brúðkaupið!!

Tuesday, July 17, 2007

Góða kvöldið en þessi sólríki dagur er að kveldi komin og það er svo sem ekkert merkilegt að frétta annað en það er bara sól sól og aftur sól og sóðan að eins meiri sól og svo pínu meiri sól. Var ég búin að minnast á það að það er búið að vera sól og svo 20 stiga hiti plús núna í svona mánuð?? Ég er viss um það að um verslunarmannahelgina (af hverju í andsk. er þetta svona langt orð) þegar allir verða crazy fullir á útihátíðum um allt land því belive me þá munu koma alveg crazy rigning og sennilega snjór ef ekki þá verður í besta falli fellibylur!! Nei meina sbo týpískt búið að vera geeeeeðbeikt veður allt sumarið en þegar það er algjört must að veðrið sé gott þá rignir eldi og brennisteini!!

Talandi um verzló '07 þá verð ég í (langþráðu) fríi í vikuna fyrir verzló sem er sniðugt í ljósi þess að það er heill hellingur af BYKO staffi á leið á þjóðhátíð sem mér langar alveg ógeðsæega mikið á !! En svona as usually þá er ég ekki að fara á þjóðhátíð!! Og það hjálpar ekki mikið til að ég keypti mér diskinn í brekkunni sem er BARA með þjóðhátíðarlögum Lífið er yndislegt og allur pakkinn!! uhuhuhuhu!!! Í alvöru er engin til i að koma með mér á þjóðhátíð?? U know my number!!

Thursday, July 05, 2007

Jæja loksins komið veður til að blogga! Skýjað alveg að koma rigning og svona. Meina það er búið að vera geðveikt veður alveg í crazy langan tíma nú hlýtur að rigna stanlaust á mánuð!Var að updeita símann minn (veit ekki alveg hvort að ég hafi fundið rétta mynd af honum en jæja..!) og missti út þar af leiðandi nokkur númer þegar ég færði símakorti á milli! Sem er ekki gaman. Og ég er svona manneskja sem get bara alls ekki munað símanúmer þó svo að ég sé búin að senda grilljón sms í það og hringja mun oftar í þau þá bara get ég það ekki. Man ekki einu sinnu númerið hjá litla bróður! Man að Árni Blandon var að reyna að útskýra þetta í sál forðum en að sjálfsögðu var ég ekki hlusta!!
Ínýja fína símanum mínum er gólf leikur þannig að nú er ég farin að skilja gólf mikið betur! Þannig að ef þú ferð á 5 yfir pari þá er það slæmt! magnað!