Hvernig í ósköpunum stendur á því að Hagkaup er alltaf með tax free helgi á fötum síðustu helgi mánaðarins þegar maður á engan pening?? hafiði ekki pælt í þessu?? Það er óþolandi að skoða blöðin alltaf á föstudögum og sjá að það er heilsíða um tax free manni vantar kannski buxur eða e-ð frekar ódýrt og væri alveg til í að nota svona tax free dæmi en nei nei þá á maður ekki fokking pening!! Pirrar mig geðveikt!
Hvernig væri að hafa tax free dæmi líka um næstu helgi svona til tilbreytingar?? Þá á ég pening! Hagkaups menn breyta þessu takk!!
My favorite store Zik zak got a homepage!Veit ekki af hverju þetta er á ensku en okei! Er að reyna vera pinu svona international! Ég verð samt að viðurkenna það að ég er aðeins farin að spá í jólaföt meina ef ég næ að útskrifast og svona! Samt er familían farin að pressa svoldið mikið a mig á að fá partý fyrir jólin og þa með snyttum og kampavíni og öllu! Ég er að reyna að hugsa ekki um stúdentaveislu alla vega ekki fyrr en allt er í höfn-sérstalega stærðfræðin!
Læra alla helgina! Hjálpaðu mér upp mér finnst ég vera að drukkan-í verkefnum! Eitthvað svo sorglegur dauðdagi!
1 comment:
Jæja, þá er það staðfest. Ég get því miður ekki komið í stúdentaveisluna þína, vegna þess að ég verð farin löngu fyrir þann tíma. Lendi á John F. Kennedy flugvelli í New York mánudaginn 5. nóvember, og verð komin til Atlanta, GA, nokkrum dögum síðar...
Jólaundirbúningurinn er sennilega löngu byrjaður í USA. Missi reyndar af Halloween þarna úti, það er held ég helgina áður en ég fer. En já... Míns er að deyja úr spenningi..
Post a Comment