Sunday, September 09, 2007

Jæja það er á mörkunum að maður þori a blogga eftir að jesú bloggið lenti í sunnlenska og eg hef ekki en hugmyns um það hvernig það lenti þar! Ég hef ekki efni á að ráða 007 gæjann til að finna það út fyrir mig þannig að ég veit ekki hvernig þetta lenti þarna! Og síðan er ég búin að vera með þessa síðu ímeira en 3 ár og nú fyrst þá er familían að kveikja á því að litli vitleysingurinn er með bloggsíðu! Mig grunar að langur fattari sé arfgengur!

Fór í klippingu á fös sem er ekki frásögu færandi. Keypti mér hásprey sem er ekki frásögufærandi nema fyrir það að brúsinn er svona álíka stór og ég! Það sem er ég er í minni kantinum þá eru þetta ekki ýkjur! Þetta er ekki svona krúttlegur wella brúsi sem kemst oní pínu litlu appelsínugulu snyrtitöskuna mína rúmast ekki í skápnum inn á klósetti heldur þarf ég að smíða sér skáp undir ferlíkið!!!!!! Meina ég þarf ekki að óttast að klára úr brúsanum eftir 2 sikpti á það til að nota svoldið mikið en samkvæmt þóru sem klippir mig þá á ég að nota mikið!

Var svo að bæta við make up draslið mitt sem er í sorglegri kantinum keypti meik og svona gellz stöff! Meina ball og svona um næstu helgi. Já ég sagði það að það er ball á Selfossi um næstu helgi og svo eftir það verður þetta jafn stein dautt og þetta hefur verið síðan að pakkhúsinu sáluga var lokað! Já ég sakna pakkhússins!

Rétt upp hönd sem nennir aðtaka til í herberginu mínu! Þetta er bara orðið of mikið fyrir mig!

Brennsla dagsins:
Trúir þú á engla-Bubbi
Pollýanna-Bubbi
Manstu-Bubbi
Háflóð-Bubbi
Sumar konur-Bubbi

Búin að hlusta svoldip mikið á Bubba í dag!

4 comments:

Anonymous said...

Rétt upp hönd sem nennir að taka til í herberginu MÍNU. (Ekki rétti ég upp hönd allavega...)

Ágústa Arna said...

ef ég nenni ekki að taka til í mínu (sem minnir meira á vívöll með hverjum deginum sem líður eg er að segja þér það) hvernig á þeg þá að nenna að taka til í þínu??

Ok eigum við að fara að plana hitting???!!

Anonymous said...

Jamm, verðum að fara að skipuleggja, en samt finnst mér eins og ég sé alltaf að skipuleggja eitthvað svona. Mér finnst alveg vera kominn tími til að hinar fari í smá skipuleggjaraleik...þó að mér finnist ógó gaman að því.

Það er nú ýmislegt annað sem er ofar á TO DO-listanum mínum þessa dagana, eins og t.d. að:
* þrífa bílinn minn að innan (sem hefur ekki verið gert síðan löngu áður en Hitler fæddist liggur við...)
* raða öllu bókhaldinu mínu í möppu
* taka til í herberginu mínu
* ...og margt, margt fleira.
* en í augnablikinu er það bara að reyna að koma sér á lappir og úr náttfötunum...og klukkan er hættulega mikið farin að nálgast hádegi skal ég segja þér...hehe :P

Ágústa Arna said...

skal taka að mér að skipuleggja geeeeðveikan hitting bara finna dagsetningu sem hentar öllum! Okei skiluru??!

hausinn á mér er búin að vera svaðalegu í dag