Jæja nú er komið að laaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaaangri færslu kannski! Ég var búin að finna e-ð rosa sniðugt til að blogga um en það er eins og gullfiskaminnið sé ekki að bregðast mér og ég man ekki um hvaðég ætlaði að blogga þannig langt veit það ekki!
Valur á núna í alvöru fræðilega möguleika á því að verða íslandsmeistari eftir að hafa unnið FH áðan en fh var búið að vera á toppnum í 61 umferð eða síðan sumarið 2004 sem er hellings langur tími! Pæliði í því ég var 18 sumarið 2004! Hver átti svo sem von á því í vor að e-ð annað lið en fh urði íslandsmeistari?? Ekki ég alla vega. Fyrir þá sem eru ekki að kveikja þá er ég að tala um fótbolta!
Sá inni á vísi í morgunn að Barcelona hafði unnið í Spænska án þessa að Eiður spilaði með. Ég veit það ekki en mér fannst vera smá svona biturð í þessu hjá íþróttafréttamönnum 365 að Guðjónsen kvikindið hafi ekki fengið að spila. Og já ég er enþá að tala um fótbolta!
Brennsla dagsins:
Hólmfríður Júlíusdóttir-Nýdönsk*
Háflóð-Bubbi
Black hole son-Soundgarden
Ilmurinn-Guðmundur Jónsson og Björn Jörundur
Verður bara fjögura laga af því að ég er búin að hlusta svo mikið á Bubba í dag!
*Hólmfríður Júlúsdóttir inniheldur sennilega einhvern samhengislausasta texta sem ég hef heyrt "hjá mér situr hun og stoppar í samband okkar spáir í Morgunnblaið og mig" Pæling: Þegar sambandið er í fokki hver spáir þá í hálfvitalegar fyrirsagnir í Mogganum?? En samt æðislegt lag!!
Næturvaktin er snilld!!! Bjóst einhver við öðru??!
4 comments:
Ætla ekkert að kommenta á þessa fótboltaumræðu hjá þér af því að það er einfaldlega bara ekki my thing...
En hey, ég spilaði kreisí fótbolta í sumar með "my roomies" á Skógum, á túninu fyrir framan hótelið, og það var eftir að ég var búin að vinna, sem var by the way eftir kl. 23, og það sem við föttuðum ekki, og ég var að fatta núna, er að það á að vera komin þögn á hótelinu um hálf tólf minnir mig.. Og við vorum þarna 6 manns gargandi og vælandi..hehe. Já, en svo að það fylgi sögunni, þá skoraði ég eitt mark. En já...ætla ekki að fara útí það hversu mörg mörk ég náði ekki að verja þegar ég var í marki...hmm hmm
ein spurning: ef við færum sama í fótbolta strumpurinn vs miss sverrisdóttir hvor myndi vinna??
Gvööööð, ég myndi rústissu!!! Ekki spurning. Samt myndi ég ekkert fara eftir leikreglunum. Það er nebbla málið, fólk fattar ekki, að aðal leynivopnið til sigurs, er að fara EKKI eftir reglunum.. Hananú!
allt í lagi! einu reglurnar sm ég krfest þess að verði farið eftir verði eru reglurnar sem snúa að rangstæðum!! Ritthvað sem engin skilur! hvernig í andskotanum er hægt að standa vitlaust??
Post a Comment