Tuesday, September 11, 2007

Jæja taka 2 hitt ákvað að detta út e-ð og fara í fýlu. Nennum því ekki!

Okei ég er að reyna að troða því inn í hausinn á mér að mágur/mágkona er sá sem býr með/er giftur systkini manns en ekki er bróðir/systir kærastans sem maður er með!!! Þetta olli smá svona misskilningi á msn í dag! Enda er hausinn á mér búin að vera frekar skrýtin ídag svona eins og reyndar alltaf en okei! Talandi um msn þá er lína sem er fyrir neðan nafnið eða það sem þú kallar þig á msn og þar getur skrifað svona eins og til dæmis "3 dagar í helgina" eða e-ð. Í þessari línu er ég með skrifað "sumar konur hlægja eins og hafið" sem er tilvitnum í lagið Sumar konur með meistara Bubba. Miss Sverrisdóttir ákvað þá að snúa að eins út úr þessu og sendir mér á msn "og sumar konur hiksta eins og chuvává (kann ekki að skrifa það!) og ég ábyrgi nemandinn busý við aðhlusta á fyrirlestur um kortasögu Íslands var mjög nálægt að missa það úr hlátri ala ég! Ég veit ekki með ykkur en mér fannst þetta alveg ógeðslega fyndið!! Stendur ekki einhversstaðar simple mind simple pleasure?? Á það ekki ágætlega við í mínu tilfelli!

Alltaf verður heimili mitt meira og meira nútímalegra það er komið svona adsl sjónvarp frá símanum sem ég þori ekki að koma nálægt að ótta við að skemma e-ð því það er e-ð svo týpískt fyrir mig að það kemur nýtt tækni dót e-ð og ég fer að fikta og skoða sem endar í error eða e-ð! Síðan er þetta adsl ekki eins sniðugt og ég helt það er ekki hægt að hafa það inni í mínu herbergi! Og hvernig a ég svo að þykjast að vera nútímaleg þegar ég sé gömlu konurnar í ræktinni með geðveika ipoda??

Viti það að ég er að fíla Sprengjuhöllina. Það er e-ð sem er svo öðruvísi við þá e-ð sánd sem maður heyrir ekki á Íslandi þetta er svona þjóðlagalennt en nær samt að vera kúl þjóðlaga popp! Svei mér þá að platan þeirra semá að koma í úr í október endi bara ekki á jólagjafalistanum!

Talandi um það þá eru 3 mánuðir og 13 dagar til jóla aðeins meira en 100 dagar!

Brennsla dagsins:

Hvað er klukkann-Bubbi
Glúmur-Sprengjuhöllin
In the name of love-u2
Feel-Robbie Williams
Nektarklúbbabúbbar-Millarnir ( sá sem sandi textann fær plús fyrir línuna upp á borði er ljúfa Dana nýlent frá lúblíana!)

2 comments:

Anonymous said...

Jú, eftir því sem ég best veit, þá getur mágur/mágkona verið bæði.. Semsagt annaðhvort maki systkina þinna eða systkini maka þíns... (Mega nú allir orðabókasnillingar landsins leiðrétt fávisku mína, ef þetta er ekki rétt hjá mér...)

Já, skulum ekki tala meira um þennan blessaða hiksta minn, reyni að láta lítið fyrir honum fara. Kemur aðallega þegar ég er búin að þamba eitthvað ógó ískalt. Og það skrýtna við það er, að til þess að laga þetta er að þamba bara meira... (En virkar samt ekki með bjór - enda var allur bjórinn sem ég drakk í sumar ekki það kaldur, ísskápurinn á Skógum var ekki neitt svaka kaldur, og ég kunni ekki að laga það..hehe)

Verð að segja það sama um Sprengjuhöllina. En aftur á móti myndi ég aldrei bíða til jóla til að kaupa plötuna... Glætan spætan.. Þú verður samt að vera aðalmanneskjan í því að láta mig vita þegar það koma svona nýjar íslenskar hljómsveitir á sjónarsviðið...svona þegar ég er komin til USA... (Ekki það að ég geti ekki fylgst með á Myspace og svona..bara nauðsynlegt að hafa svona fréttaritara á Klakanum..)

Ágústa Arna said...

skal með glöðu geði vera sérlegur tónlistarfréttaritari þinn á meðan þú ert að meika það í ameríkunni!:)