Í dag var síðasti kennsludagur í október sem er í skelfilegri kantinum því það minnir mann á að það er allt of stutt í prófin!! Vá veit ekki hvort eg sé að meika tilhugsunina um prófin en ég er byrjuð að hugsa um þau! Síðan er orðið skelfilega stutt í að Miss Sverrisdóttir stingi af til USA til að verða þar í ár-það liggur við að ég sé trax farin að sakna hennar! Hún er að fara á mánudaginn
Ég borgaði ...búningin áðan!!!! Djö hvað ég hlakka til að dimmitera ég bara get á engan hátt beðið eftir því en þangað til er hellingur af verkefnum prófum ritgerðum og þess háttar skemmtileg heitum! Sem svona minnir mig á það hvar finn ég heimildir um gróðurhúsaáhrif og loftslagsbreytingar...bá hvað þetta er leiðinlegt subject en um þetta þarf ég að skrifa 5-10 blaðsíður! Með myndum!
Vegna algjörlega óviðráðanlegra aðtæðna er ég ekki að komast í ræktina og ég er ekki að fíla það!!
Mér langar óendanlega mikið í safndiskinn með Nýdönsk! Þetta er ein af albestu hljómsveitum ílenkrar tónlistarsögu!
Mugison er að fá frábæra dóma fyrir plötuna sína Moogieboogie fékk fullt hús hjá moganum. Moogieboogie er á jólagjafalistanum
Bubbi er að fara að halda tónleika með Big bandi í Laugardalsgöll. Það er pínu geðveikt!!
Jóólatónleikar með Bó í höllinni 8 des (dánardægri Lennons) þar sem hann ætlar að taka best of af öllum jólalögunum sínum. Eigum við að ræða það eitthvað??
Svona áður en eg sofna með lappann í fanginu (það eina sem ég kúri hjá þessa dagana og kannski skólabækurnar þess á milli!) þá er það brennsla dagsins:
Lola-Robbie Willims
Afstæðiskenning ástarinnar-Jón Ólafsson
Flugvélar-Nýdönsk
Regína Ósk-Ljóin komu
I don't know why-Norah Jones
Æ-i ég veit það í kvöld er þetta svona í píkipopp kantinum hljómar svoldið eins og Létt 967 en common ég er búin að vera að læra (geri ekki mikið annað þesa dagana!) og kannsk ekki búin að hugsa þetta alveg til enda þannig give me a break!
1 comment:
Er búin að hanga í tölvunni í dag, og var að enda við að skrifa þriggja blaðsíðna tölvupóst til vinkonu minnar í Póllandi. Einhver hundleiðinlegur þáttur á RÚV þar sem kínverjar eru að grenja upp á sviði..heh.
Já, svo er ég er bara að fara til USA til að láta fólk sakna mín..lol.
En aftur á móti.. þá ætla ég að heimta fullt af pósti, tölvupósti sem og sniglapósti.
Mér finnst alltaf jafn gaman að fá póst, svo lengi sem það er ekki gula umslagið sem ég fæ mánaðarlega svo að ég geti borgað af bílnum mínum, já, og yfirlit yfir aukalífeyrissparnaðinn minn...hehe. Samt alltaf gaman þegar maður heyrir nýjasta Cosmo-blaðið detta inn um bréfalúguna..hehe.
En allavega, þá er ég sammála þér með Mugison. Hann er bara snillingur. Kíktu á Youtube, og kíktu á myndband þar sem hann var að syngja á Kaupþingstónleikunum á Laugardagsvellinum. BARA SNILLD!!
Jábbs, en alltaf tekst mér að stela senunni, og skrifa jafnlöng, ef ekki lengri komment heldur en bloggfærslan þín er... Vona að þú fyrirgefir..
Jæja, ætla að fara að sofa, augun mín eru á leiðinni í verkfall..
Post a Comment