Hefði John Lennon kallinn lifað væri hann orðin löggildur eldri borgari á Íslandi og af því tilefni kveikti sem hefur hreinlega atvinnu af því að vera ekkja á friðarsúlunni í Viðey í kvöld og ég hlakka til að gara í bæinn að kveldi til að kíkja á herlegheitin hvenær sem það nú verður!
Lag dagsins: Imagine by John Lennon
Brennsla dagsins eru bara Bítlalög svona í tilefni dagsins og þau verða 10 takk fyrir!:
All you need is love
Hey Jude
Help
In my life
I saw her standing there
Yellow submarine
She loves you
Yesterday
Oh darling
I wanna hold your hand
Ef þið eruð ekki að ná því þá eru öll lögin með Bítlunum!
Ég lýsi eftir fólki sem nennir að koma og taka til í þessu sem kallast herbergið mitt sem á ekki að líta út eins og það gerir núna ég veit það en þar sem það er crazy mikið að læra þessa dagana þannig aðég þarf að fá utan aðkomandi aðstoð! Fyrir þá sem halda að ég sé að djóka þá nei því miður þá er ég ekki að djóka!!
Ræktin klukkann hálf 8 í fyrramálið!!
4 comments:
Á ég ekki bara a bjóða í verkið? 5 þúsund kjell á tímann og málið er dautt!
Annars þá sló ég metið mitt í tiltekt um daginn. Ég hélt út í alveg nokkra klukkutíma að taka til í herberginu án þess að stoppa í meir en hálftíma í einu... Við erum að tala um að það actually sást í gólfið í herberginu.
En viti menn, tóku ekki bara foreldrar mínir uppá því að rífa teppið af herberginu sínu og mála það, og hentu öllu heila klabbinu úr sínu herbergi (semsagt náttborðum og fleira dóteríi) beint inní herbergið mitt..hehe. Þannig að mín bíður ansi skemmtileg sjón þegar ég kem heim á eftir.
Er semsagt núna á BSÍ að bíða eftir Selfossrútunni. (Er búin að eyða 5200 kalli í rútufargjöld í dag..)
Jebb.. ég biðst afsökunar á því hversu ógó langt kommentið mitt er. Það sýnir það bara að ég er ekki enn farin að nota slangur og styttingar og skammtstafanir fyrir hvert einasta orð á íslenskunni, mínu ástkæra móðurmáli.
- En eitt: Viltu gera svona veðmál um hversu mikinn suðurríkjahreim ég verð komin með eftir eitt ár...og hversu mörg orð ég kann ennþá í íslenskunni??
Ef ég get gert mig skiljanlega á íslensku, þá þarftu að gefa mér ógó flottan jólapakka. Ef ekki, þá þarf ég að giftast einhverjum af handahófi í Las Vegas á næsta ári. (Nei...reyndar myndi ég aldrei sætta mig við það. Ef ég tapa... þá færðu stórt Toblerone úr fríhöfninni í jólagjöf frá mér...)
Já...svona er þetta með kommentin hjá mér... Þú verður bara að gjöra svo vel að skrifa lengri blogg kona, svo að ég geti gert ennþá lengri komment. (Eða kannski er þetta bara af því að mér leiðist svo ógissla hérna á BSÍ, umkringd af trukkaköllum að háma í sig sviðakjamma og með því...)
Bæjó :P
(Enn og aftur: Mundu 27. okt.)
Vá, ó mæ fokk..!! Áttaði mig ekki á því hversu ógó langt þetta komment var...hehe.
bara gaman að fá sona úbber dúbber löööng komment sem er alltaf skemmtilegt a lesa !
5200 kall í rútukostanað á degi??!!! afsakið orðbragðið af hverju í andskotanum er svona dýrt að taka rútur?? ég skil þetta ekki eða kannski bara að ég neita að skilja hvað er í gangi?? Ég veit ekki upp á hár hvað það kostar nákvæmlega að fara með rútunni í bæinn n samkvæmt því sem ég hef heyrt þá er það farið að nálgast 1500 kall!! pg svo er verið að kvarta undan bensínverðinu!!! þetta er ótrúlegt!
1200 kall er það reyndar - og 4000 frá Grundarfirði til RVK. OKUR! (eins og Dr. Gunni segir..)
Post a Comment