Friday, October 05, 2007

Jæja tónlistarpistillinn sem ég er búin að vera á leiðinni að skrifa alla vikuna en here it is!:

Á myspacinu hjá Pink ernýji singullinn hennar Dear mr Presidant. Mæli með að þið hlustið á textann sem er í flottari kantinum! Af þessum söngdívum Britney Agilera og Pink er lang flottust enda er til dæmis Britney í ruglinu totally!

Á miðvikudaginn kemur út platan tímarnir okkar með Sprengjuhöllinni og ef þið eruð áhugasöm þá er forhlustun alla helgina á tónlist.is! Þsð er svo magnað með textana hjá þeim Sprenjuhallardrengjum að lögin eru kannski 4 mínútur og á þeim 4 mínútum þá er komið alvg helling af ýmsum upplýsingum og þetta eru ekki venjulegir poptextar þar sem viðlagið er alltaf endurtekið aftur og aftur og aftur eins og til dæmis ertu þá farin ertu þá farin frá mér hvar ertu núna hvert liggur þín leið þetta kemur nokkrum sinnum fyrir í þjóðsöng Selfoss!

Ein af mínum uppáhalds íslensku hljómsveitum Nýdönsk er að verða 20 ára og er að fara að gefa út allar gömlu plöturnar út aftur í stórum pakka og að koma út safndiskur og tónleikar í Borgarleikhúsinu ! Mig langar ogeðslega á þá!

Brennsla dagsins:

Fire (roof is on fire)-Bloodhound gang
Alelda-Nýdönsk
Verum í sambandi-Sprengjuhöllin
Lady shave-Gusgus
Svífum-Skítamórall

No comments: